|
Föstudaginn 9. september 2011 verður hin árlega Haustráðstefna Skýrr haldin á Hilton-hótelinu við Suðurlandsbraut. Þetta er stærsta ráðstefna Skýrr um upplýsingatækni frá upphafi, enda um 60 fyrirlestrar í boði á 6 mismunandi fyrirlestralínum. Um þriðjungur fyrirlesara eru erlendir sérfræðingar. Lykilræðu flytur Jeff Wieland hjá Facebook, en hann fjallar um þann starfsanda og vinnuferla („The Facebook Process“) sem lagðir eru til grundvallar hjá þessum samfélagsmiðlarisa. Aðra lykilræðu flytur Hilmar Veigar Pétursson hjá CCP og ræðir þar einstakt Þetta er sautjánda árið í röð, sem ráðstefnan er haldin og í ár er gert ráð fyrir metaðsókn, enda mikil eftirspurn í samfélaginu fyrir gagnlega fræðslu um lausnir upplýsingatækni fyrir atvinnulífið. Athugið að vegna síaukinnar aðsóknar á Haustráðstefnuna undanfarin ár og mjög takmarkaðs sætarýmis, þá biðjum við hvern og einn ráðstefnugest að skrá sig á þá fyrirlestra sem viðkomandi hefur mestan áhuga á. Þetta gerum við til að fá vísbendingar um fjölda gesta á hvern og einn fyrirlestur og geta raðað í mismunandi stóra sali í kjölfarið. DagskráVið skipulagningu Haustráðstefnunnar er ávallt lögð áhersla á fræðslu, þekkingarmiðlun og faglega fyrirlestra sérfræðinga í fremstu röð. Á Haustráðstefnu Skýrr 2011 eiga því allir að geta fundið sér fyrirlestra við hæfi, hvort heldur stjórnendur, tæknifólk eða almennt starfsfólk sem sýslar með tól og tæki upplýsingatækninnar hversdags. Haustráðstefna Skýrr 2011 veitir einstæða sýn á upplýsingatækni fyrir atvinnulífið. Dagskrá mun standa yfir frá klukkan 8:00 til 18:00 þegar dagurinn verður kláraður með hressandi lokapartý og skemmtidagskrá sem stendur fram á mitt kvöld. Meira
Fyrirlestralínurnar sex
Dagskrá í símann þinnÞegar þú skráir þig færðu sendan QR kóða fyrir símann þinn, þar getur þú skoðað þína dagskrá.http://dagskra.skyrr.is |
![]() ![]()
AfsláttarkjörViðskiptavinir Skýrr og gestir á morgunverðarfundum fyrirtækisins undanfarin misseri fá 15% afslátt frá listaverði. Sagan2011 er sautjánda árið í röð sem Haustráðstefnan er haldin. Fyrstu árin var Haustráðstefnan haldin undir merkjum Teymis (áður þekkt sem Oracle á Íslandi), sem sameinaðist seinna Skýrr, og einblínt var á Oracle-lausnir. Árið 2007 var síðan hafist handa við að útvíkka þema haustráðstefnunnar og horfa einnig til annarra lausna og sviða upplýsingatækni, sem Skýrr sinnir og viðskiptavinir fyrirtækisins hafa áhuga á. |
![]() |
|





