Fjárhagur

Í kerfisleigu Skýrr býðst hýsing fyrir nánast allan viðskiptahugbúnað sem í notkun er hjá íslenskum fyrirtækjum í dag.  Ef viðskiptahugbúnaðurinn er hýstur hjá Skýrr, sjáum við um notendaaðgang, rekstur vélbúnaðar, afritunartöku og fleira. 

Microsoft Dynamics NAV í kerfisleigu

Skýrr býður mjög einfalda og þægilega upplýsingatækni fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Í boði er fullkomið Microsoft Dynamics NAV til leigu. Enginn uppsetningarkostnaður, fyrstu 30 dagarnir fríir og engar færslutakmarkanir.  Kerfið er hýst miðlægt í öruggu umhverfi hjá Skýrr, stærsta hýsingaraðila Microsoft Dynamics hugbúnaðar á Íslandi.

Hvað er í pakkanum?

Um er að ræða leigu, rekstur og vörslu á stöðluðum Microsoft Dynamics NAV hugbúnaði. Hugbúnaðurinn kemur með uppsettu einu fyrirtæki með stöðluðum bókhaldslykli og grunnuppsetningu.

    Microsoft Dynamics NAV

  • Fjárhagsbókhald
  • Eignakerfi
  • Viðskiptamanna- og sölubókhald
  • Lánardrottna- og innkaupakerfi
  • Birgðir
  • Forðabókhald – grunnur
  • CRM tengslastjórnun – grunnur
  • Starfsmannahald – grunnur
  • Ótakmarkaður fjöldi fyrirtækja (með sömu eignaraðild)

Hægt er að fá öll sérkerfi Navision í leigunni.

Helstu kostir:

  • Kostnaður þekktur
  • Auðvelt að skala til notendafjölda
  • Engin uppfærslugjöld
  • Áhyggjulaus rekstur í kerfissal Skýrr
  • Örugg afritunartaka
Það eru engar vörur í körfunni