Hvernig virkar Kerfisleiga?

Grunnhugmyndin við Kerfisleigu er úthýsing á öllum miðlægum búnaði í kerfissölum Skýrr sem eru þeir allra fullkomnustu á Íslandi.  Hvert fyrirtæki tengist Kerfisleigunni í gegnum nettenginu og fær þá aðgang að þeirri þjónustu sem um var samið.  Þannig getur Skýrr rekið eitt stórt umhverfi á mun lægra verði og með mun meira öryggi en ef fyrirtæki reka marga minni kerfissali.   

 

Mjög auðvelt er að stofna, eyða og breyta notendum og getur skilgreindur umsjónarmaður í hverju fyrirtæki fyrir sig gert það í gegnum sjálfsafgreiðsluviðmót.

Notendur fá aðgang að þjónustuveri Skýrr sem er opið allan sólarhringinn, allan ársins hring.

Það eru engar vörur í körfunni