Sími
Helstu kostir miðlægrar símstöðvar Skýrr eru:
• Skrifstofusíminn aðgengilegur úr PC tölvu starfsmanns hvar sem er í heiminum
• Samtvinnun á GSM og skrifstofusíma
• Talhólf samtengt við pósthólf starfsmanns
• Sjálfsaðgreiðsla á stillingum, t.d. áframsendingu símtala, í gegnum vafra
• Lægri útlandasímtöl gegnum IP gátt Skýrr
Hluti af símalausn Skýrr er nýjasta samskiptatólið frá Microsoft, MS Communicator. Með Communicator fá starfsmenn eigið spjallkerfi (Instant Messenger), sjá stöðu starfsmanna út frá Calander upplýsingum póstkerfisins, hvort starfsmaður sé að tala í síma (GSM eða fastlínu) og fleira. Nota má lausnina fyrir innanhússímtöl og fjarfundi.
