Prent- og upplýsingavinnsla

Heildarlausn fyrir prentun, pökkun og dreifingu

Skýrr er með umfangsmikla starfsemi á sviði breytilegrar gagnavinnslu. Skýrr býður fyrirtækjum og stofnunum heildarlausnir þegar kemur að prentun, pökkun og dreifingu. Boðið er upp á margs konar gagna- og upplýsingaöflun tengdri uppsetningu reikninga til prentunar eða rafrænnar birtingar.

Helstu kostir:

  • Allar gerðir af prentun og strikamerkingar á gögn
  • Öryggi gagna tryggt og strangar öryggisreglur
  • Fullkomið prentstýrikerfi sem sannreynir prentferlið alla leið
  • Öflugir og afkastamiklir prentarar

Prentun

Prentun Skýrr er afar fjölbreytileg og felur meðal annars í sér prentun á greiðsluseðla, gíróseðla, launaseðla, happdrættismiða, innheimtubréf, kynningarefni, bréfsefni og nafnspjöld. Einnig er áritun á nafn viðtakanda á bréf og seðla, sömuleiðis umslög eða annað sem viðskiptavinurinn óskar. Helstu stærðir umslaga eru C65, C5 og C4. Þjónustan tekur einnig yfir prentun á námsgögnum og skýrslum, í lit og svart hvítu, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Þar sem prentgögnum er t.d. skilað plastað og gormbundið eða samkvæmst öðrum séróskum viðskiptavinarins.

Skýrr hefur prentað trúnaðarupplýsingar til margra ára og hefur ávallt fyllt ströngustu öryggisreglum hvað það varðar.


Prentarar

Prentarar Skýrr eru með þeim öflugustu og afkastamestu á landinu. Í prentsal Skýrr eru tveir hágæða laserprentarar, Xerox DP96, sem hafa afkastagetu sem nemur tæplega 12.000 blöðum á klukkustund. Með slíka prentara tryggir Skýrr hámarksgæði í prentun og einnig öryggi og mikil afköst. Í prentsal Skýrr eru einnig fjölmargir aðrir prentarar litalaserprentarar og öflugir fjölprentarar í svarthvítu. Allur búnaður Skýrr er hannaður til að virka sem best í breytlegri prentun og styttir það verulega afgreiðslutíma prentgripanna.
 

Ísetning í umslög og pökkun

Skýrr hefur aðgang að einum öflugasta vélbúnaði á landinu sem setur prentgögn í umslög. Fjórar afkastamiklar ísetningarvélar sjá um brot og vélpökkun á öllum prentverkum Skýrr. Þegar pökkun er lokið er öllum póstinum raðað eftir forskrift Íslandspóst og sent þangað til útburðar. Þannig er tryggt að hámarks afsláttur fáist af burðargjöldum. Ef bréf eru of mörg til að komast í vélpökkun eru þau flokkuð sér og handpökkuð. Öll prentun er strikamerkt sem þýðir að öll bréf sem eiga að fara saman fá auðkenni og raðast sjálkrafa saman í pökkunarferlinu. Skýrr og Íslandspóstur hafa átt mörg farsæl ár í viðskiptum og er Skýrr einn af stærstu viðskiptavinum Íslandspósts.

 

Meðferð trúnaðarupplýsinga

Skýrr hefur innleitt öryggisreglur vegna trúnaðarupplýsingar þar sem starfsmenn fyrirtækisins vinna með mikið af viðkvæmum trúnaðarupplýsingum. Öryggisreglurnar krefjast þess að allir starfsmenn Skýrr skrifa undir trúnaðarsamning vegna meðferðar trúnaðarupplýsinga. 

Prentarar og pökkunarvélar eru í læstum og aðgangsstýrðum rýmum. Prentferlið er öruggt þar sem gögnin eru send með dulkóðuðum hætti í prentara. Einnig fylgja ýtarlegar upplýsingar verkinu frá því að það kemur inn í hús og fylgja því alla leið til Íslandspósts. Á þessum verkupplýsingum eru nákvæmar lýsingar á framkvæmd verksins og þetta kemur þannig í veg fyrir að nokkuð af gögnunum tapist í ferlinu.

Eftirfylgni

Prentstýrikerfi Skýrr geymir upplýsingar um fjölda skjala og síðna, ásamt mörgum öðrum öryggisupplýsingum. Stýrikerfið talar stöðugt við prentarana meðan á prentun stendur og sannreynir að hvert skjal hafi verið prentað út.

Við lok prent- og pökkunarferilsins eru þessar upplýsingar bornar saman við það sem okkar viðskiptavinur sendi inn. Strikamerki er sett á hvert blað sem ísetningar- og pökkunarvélar lesa. Þessi strikamerki koma í veg fyrir að tvöfalt efni fari í umslag og einhver skjöl gleymist og verði ekki pökkuð. Öll misræmi í strikamerkjum eru ávallt fylgt eftir af þjónustufulltrúm Skýrr.


Önnur þjónusta hjá Skýrr

  • Dreifing á PDF - við útbúum PDF-skjöl af öllum útsendum seðlum og afhent viðskiptavinum okkar sem hefur þá öll gögn nákvæmlega eins og þau fóru til viðskiptavinarins (archive). Við getum búið til eitt PDF skjal fyrir hvert bréf og sent beint á viðskiptavin.

  • XML tengingar - útvegum einnig og aðstoðum við xml tengingar við ýmis kerfi (erp), eins og fjárhagskerfi t.d. Navision, Oracle og fleiri kerfi. Við getum prentað beint í xml skjal fyrir birtingarkerfi bankanna. Við erum með xml inngang og útgang.

  • Markhópagreining - útbúum markhópa á límmiða eða á lista samkvæmt reglum Hagstofu Íslands og Tölvunefndar.

Það eru engar vörur í körfunni