Verkefni
Verkefni sem Skýrr hefur innleitt rafræn skilríki eru m.a.
- Skattframtöl á vef
- Tollafgreiðsla á vef
- Vegabréfaútgáfa
Tollstjórinn og ríkisskattstjóri nýta skilríkin mest allra stofnana og þau eru mikilvægur hlekkur í starfsemi þeirra. Tollstjórinn nýtir skilríkin við veftollafgreiðslu tollskýrslna en ríkisskattstjóri notar þau fyrir rafræn skil endurskoðanda á skattskýrslum. Útgáfa rafrænna íslenskra vegabréfa með lífkennaupplýsingum hófst 17. maí 2006.
Rafræn skilríki á debetkortum
Skýrr er íslenskur birgir og í forsvari fyrir heildarlausn erlendra lausnaraðila í samstarfi Fjármálaráðuneytis og Sambands banka- og verðbréfafyrirtækja um dreifingu á rafrænum skilríkjum á debetkortum. Uppsetning kerfisins er hafin af fullum krafti.
Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Skýrr í rafrænum skilríkjum.
vottun@skyrr.is
569 5100
