IP símalausn
Símalausn EJS hýst miðlæg lausn
Með Símalausn EJS sameinum við háhraða Internet tengingu og síma sem sparar símalínugjöld inn í fyrirtæki. Símkerfið einfaldar samskipti milli fyrirtækisins og viðskiptavina, er sveigjanlegt í uppsetningu og auðvelt að breyta eftir uppsetningu. Ekki þarf að sjá um tæknilegan rekstur né halda uppi mannskap til að reka þann búnað sem til þarf. Notendur skrá sig inn í gegnum notendavefviðmót og sjá sjálfir um að stjórna símkerfinu.Helstu kostir:
- Hægt er að hringja beint af flestum vefsíðum.
- Ekki þarf að kaupa símstöð. Leigður er aðgangur að símalausn EJS.
- Allar uppfærslur á símalausninni eru innifaldar í mánaðarverði.
- Úrelding á símstöðvum er ekki lengur inn í myndinni.
- Símalausnin stækkar eða minnkar með fyrirtækinu.
- Tæknimaður fyrirtækisins stjórnar aðgerðum.
- Ekki þarf að kalla til sérfræðing til að gera breytingar.
- Notandinn getur stjórnað símtölum í sitt símanúmer með einu músarklikki með tækjastiku í Outlook og Explorer.
Símalausn EJS hentar mjög vel fyrirtækjum með dreifða starfssemi
Með því að leigja aðgang að Símalausn EJS er hægt að tengja öll útibúin við eina símstöð. Tæknimaður fyrirtækisins stjórnar símkerfinu við skrifborðið sitt með vefviðmóti og getur því sett upp eða lokað símum fyrirtækisins hvar sem er á landinu.
