Vírusvarnir
Öflugar vírusvarnir
Innifalið í Internetþjónustu Skýrr eru vírusvarnir fyrir allan tölvupóst, vírusvörnin er uppfærð reglulega og tryggir að allur tölvupóstur sem sendur er til og frá notendum er vírusleitaður í miðlurum hjá Skýrr.
Fyrir þá aðila sem vilja fá stýranlegri vírusvörn og ruslpóstsíun (spam filter) getur Skýrr boðið upp á í samstarfi við Friðrik Skúlason ehf F-Prot AVES vírusvarnar lausnir. Viðskiptavinir fá aðgang að sótthví sinni í gegnum vefviðmót og geta þannig með einföldum hætti séð yfirlit yfir sýktan tölvupóst ásamt ýmsum stýringum á vírus- og ruslapóstsvörn sinni. Tvær þjónustuleiðir eru í boði:
SecureActive
Er áskriftarleið með sveigjanlegum stillingum og aðgangi að sóttkví í gegnum Vefinn. Þau viðhengi sem ekki er hægt að hreinsa eru geymd í sóttkvínni svo og allur ruslpóstur. Kerfisstjórar hafa einnig möguleika á að setja mismunandi síunarreglur fyrir hvern og einn notanda.
SecurePlus
Er síunar- og afritunarþjónusta fyrir fyrirtæki þar sem tölvupóstur gegnir mjög mikilvægu hlutverki. SecurePlus er viðbót við SecureActive þar sem allur tölvupóstur er síaður og afrit geymd utan fyrirtækisins.
Frekari upplýsingar um F-Prot AVES má finna á heimasíðu Friðriks Skúlasonar ehf.
Hafðu samband við Internetþjónustu Skýrr til að fá tilboð í F-Prot AVES vírusvarnir.
