Microsoft leiga

Advania býður nú lausn sem felst í heildarleigu á Microsofthugbúnaði og byggir á einfaldleika, hagkvæmni og sveigjanleika í hugbúnaðarleyfum.
Með heildarleigu fá fyrirtæki hnökralausan aðgang að nýjasta hugbúnaði Microsoft fyrir allar tölvur sínar. Boðið er upp á jafnar greiðslur yfir samningstímabilið og sveigjanlegan fjölda notendaleyfa, sem breytist jafnóðum þegar tölvum er fjölgað eða fækkað.


  • Jafnari og lægri útgjöld
  • Auðvelt í umsjón
  • Gamli hugbúnaðurinn tekinn upp í
  • Hentar öllum fyrirtækjum
  • Uppfærslutrygging innifalin
  • Leiga í samræmi við notkun
  • Hagkvæmasti kosturinn í hugbúnaði

Uppfærslutrygging í leigusamningi sem þessum tryggir stöðuga uppfærslu á hugbúnaði og kostnaðarsöm heildarendurnýjun á hugbúnaðareign fyrirtækisins, og notkun úreltra hugbúnaðarlausna, heyrir sögunni til. Hægt er að búa til samning með allt frá fimm leyfum, þannig að langflest fyrirtæki geta nýtt sér þennan kost.

Microsoft veitir þriggja ára verðvernd, sem þýðir að fyrirtæki þurfa ekki að hafa áhyggjur af verðbreytingum frá Microsoft á samningstímabilinu. Greitt er samkvæmt einfaldri talningu á útstöðvum ár hvert. Einfaldleiki og þægindi eru í fyrirrúmi og ekki er þörf á að hafa samband við Microsoft til að fá viðbótarleyfi ef starfsmönnum fjölgar.

Microsoft-hugbúnaðarleigan veitir jafnframt starfsfólki leyfi til að setja upp Microsoft Office á heimilistölvum sínum, sem bæði er kjarabót fyrir starfsmenn og hvati til aukinnar framleiðni utan hefðbundins vinnutíma.

Samningarnir eru til þriggja ára og að þeim tíma loknum geta fyrirtæki framlengt um önnur þrjú ár, fjarlægt allan hugbúnað af öllum tölvum eða keypt leyfin til eignar.
Það eru engar vörur í körfunni