Þjónustuver

Opið allan sólarhringinn alla daga ársins

Þjónustuver Advania er opið allan sólarhringinn, alla daga ársins, 24/7. 
Þar er tekið á móti fyrirspurnum og ábendingum viðskiptavina í síma 440 9112
eða í gegnum tölvupóst; hjalp@advania.is

Þjónustuborð 24/7

Á þjónustuborði 24/7 fer fram vöktun og eftirlit ásamt tæknilegri aðstoð og útkallsþjónustu fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Starfsmenn þjónustuborðs hafa áratugareynslu af notendaþjónustu og eftirliti með rekstri tölvukerfa. Þeir búa yfir sérþekkingu á úrvinnslu gagna. Þar má til dæmis nefna framsetningu reikninga, útprentun eða rafræna birtingu og úrtakavinnslur úr ýmsum opinberum gagnagrunnum eins og þjóðskrá og fyrirtækjaskrá.

                                          

Upplýsingaheimar

Upplýsingaheimar er vefsvæði þar sem viðskiptavinir geta með einföldum hætti fengið aðgang að upplýsingum úr eftirfarandi gagnagrunnum.

  • Ökutækjaskrá 
  • Þjóðskrá 
  • Fyrirtækjaskrá 
  • Vinnuvélaskrá 
  • Hlutafélagaskrá 
  • Veðbönd fasteigna 
  • Veðbönd bifreiða 
  • Fasteignaskrá
Upplýsingaheimar Advania er þjónustuvefur sem veitir fyrirtækjum og einstaklingum aðgang að uppflettingum í opinberum upplýsingasöfnum og kerfum.

Þjóðskrá og úrtakavinnslur

Advania miðlar þjóðskrá og fyrirtækjaskrá til viðskiptavina með daglegum, vikulegum eða mánaðarlegum uppfærslum. Einnig vinnum við markhópalista eða úrtök úr þjóðskrá, fyrirtækjaskrá, ökutækjaskrá og fleiri skrám fyrir viðskiptavini.

Vöktun og eftirlit

Hjá þjónustuveri Advania er boðið upp á vöktunarþjónustu ásamt símsvörun fyrir viðskiptavini utan hefðbundins skrifstofutíma. Þjónustuborð Advania er opið allan sólarhringinn alla daga ársins, þar starfa sérfræðingar með mikla reynslu af vöktun og rekstri tölvukerfa.

Kerfisvöktun getur verið með ýmsum hætti og gildir þá einu hvort um er að ræða tölvubúnað hjá viðskiptavinum eða búnað sem er hýstur í vélasölum Advania. Starfsmenn þjónustuborðs Advania sinna einnig símsvörun og notendaaðstoð fyrir viðskiptavini sem geta þannig lágmarkað þörfina á að mönnuðum bakvöktum.

 
Það eru engar vörur í körfunni