Sjálfsafgreiðsla

Sjálfsafgreiðsla er aðgangur starfsmanna og stjórnenda í mannauðskerfið í gegnum vafra. Viðmótið er einfalt og líkist vefsíðu. Með notkun sjálfsafgreiðslu er viðhald upplýsinga fært nær uppruna þeirra þar sem starfsmenn og næstu yfirmenn þeirra hafa aðgang að og geta breytt helstu upplýsingum. Þetta tryggir betur nákvæmni og stöðugt viðhald þessara upplýsinga og sparar vinnu við upplýsingaskráningu hjá mannauðsskrifstofu. 

Helstu kostir

  • Nákvæmari upplýsingar og stöðugt viðhald
  • Stöðluð samþykktarferli, t.d. vegna hæfniskráningar og fræðslu
  • Stuðningur við ferli mannauðsmála t.d. starfsmannasamtöl og frammistöðumat
  • Aðgangur starfsmanna að eigin upplýsingum
  • Stjórnendur geta alltaf sótt upplýsingar um starfsmenn sína

 

Með notkun sjálfsafgreiðslu geta starfsmenn skráð og haldið við upplýsingum sínum og framkvæmt valdar aðgerðir. Skráning persónuupplýsinga, menntunar og faglegrar þekkingar, útfylling eyðublaða vegna starfsmannasamtala og frammistöðumats, skráning á námskeið og yfirlit starfsferils er á meðal þess sem starfsmenn geta sinnt í sjálfsafgreiðslu sinni.
 

Í sjálfsafgreiðslu stjórnenda geta stjórnendur skráð upplýsingar um starfsmenn sína og framkvæmt ýmsar aðgerðir sem tengjast starfsmannamálum. Skráning persónuupplýsinga, menntunar og faglegrar þekkingar, útfylling eyðublaða vegna starfsmannasamtala og frammistöðumats og yfirlit starfsferils er á meðal þess sem stjórnendur geta sinnt í sjálfsafgreiðslu sinni. Að auki nota þeir sjálfsafgreiðsluna til að samþykkja beiðnir starfsmanna um fræðslu og fleira.

Stjórnendur hafa í sjálfsafgreiðslu ætíð aðgang að nýjum upplýsingum um þætti eins og starfsmannaveltu, launakostnað, starfsþróun og endurmenntun sinna starfsmanna.