Haustráðstefna Skýrr

Smelltu á fyrirlestrana hér að neðan sem þú ætlar að skrá þig í.
Færðu músarbendilinn yfir NÁNAR til að skoða lýsingu á fyrirlestri.
07:30
08:20
08:30
09:10
 
Verslun og viðskipti1
Stjórnendalína2
Samskiptalausnir3
Rekstur og Öryggi4
Rafræn stjórnsýsla5
Bland í poka6
9.20
9.55
Ný handtæki streyma nú á markað og notkun þeirra færist inn á æ fleiri svið. Ljóst er að kaupmenn vilja nýta tækin til að taka á móti greiðslum, en þeir verða að geta treyst greiðslulausninni. Handpoint færir Evrópumarkaði brátt greiðslulausnir fyrir farsíma og önnur handtæki sem kaupmenn geta treyst. Freyr Ólafsson, tæknistjóri Handpoint, fjallar um tækniþróun og fyrirsjánaleg framtíðarskref á sviði greiðslulausna.
 
Sigríður Olgeirsdóttir hjá Íslandsbanka fjallar um hvernig Íslandsbanki vann sína stefnumörkun í upplýsingatækni, hvernig hún er látin styðja við stefnu bankans og uppsetning á stjórnskipulagi UT (IT Governance Model)
 
Markaðsumhverfið hefur breyst mikið undanfarin ári og áratugi.  Tengsl fyrirtækja við viðskipavininn skipa nú ríkari sess.  Markaðssetning nú miðar meira að því að halda í núverandi viðskiptavini en að leitast stöðugt við að ná í nýja með einhliða boðskiptum frá fyrirtæki til neytenda.  Vegna þessa er stjórnun viðskiptatengsla mikilvægari en áður.  Eina sala er ekki endapunktur heldur byrjun á sambandi.  Hugmyndafræðin sem framangreint byggir hefur verið nefnt samskiptamarkaðssetning.  CRM er angi af samskiptamarkaðssetningu og er ferlið að safna og nota upplýsingar um viðskiptavini sem auka skilning á viðskiptavinunum til að geta þjónustað þá betur.  Í fyrirlestrinum er fjallað um samskiptamarkaðssetningu og CRM og hvernig fyrirtæki sem fylgja hugmyndafræðinni búa til hagnað og eru báðum aðilum, fyrirtæki og viðskiptavini, í hag þegar til lengri tíma er litið
 
Í þessum fyrirlestri verður fjallað lauslega um það sem System Center hefur fram að færa og hvaða einingar eru innan þess. Áhersla verður á System Center Configuration Manager (SCCM 2012) sem er hluti af System Center og þær nýjungar sem væntanlegar eru þar.
 
Með nokkuð almennri dreifingu fullgildra rafrænna skilríkja á debitkortum hefur opnast möguleikinn á að fara nýta rafrænar undirritanir til að spara fé, tíma og ferðalög. Í fyrirlestrinum munu Sigurður og Haraldur svara spurningum í tengslum við rafrænar undirritanir eins og: Hvernig virka rafrænar undirritanir? Hvað þarf til? Að hverju þarf að huga? Hvaða skjalaform hentar? Og hvaða tækifæri felast í nýtingu rafrænna undirritana? Einnig verður sýnt hvernig undirrita má skjöl með mismunandi tólum og að hverju þarf að huga til að tryggja að rafræna undirritunin standist lög.
 
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir frá reynslu embættisins af því að koma sér fyrir á Twitter og Facebook og halda þar úti opnum og lifandi síðum. Hvað virkar, hvað ber að varast og hvernig gengur þetta allt saman?
 
10.05
10.40
Að hverju þarf að huga ef þig langar að fara af stað með vefverslun. Hvað skiptir máli við uppsetningu, hvaða ferlum gæti þurft að breyta og hvað þarf að tengja saman.
 
Double entry book keeping was invented in the 15th Century in Italy by Benedetto Cotrugli in ‘Delia Mercatura et del Mercante Perfetto’ (Of Trading and the Perfect Trader). The rate of change in accounting in the ensuing 5 centuries has been relatively steady, until the last few decades. Now we are at the tipping point where technology is set to radically change how the finance function is performed. The perception of finance being a costly dark art has changed to one of a valued service, the reliable right hand of businesses. SAP will share how some of its customers are leading this wave of change and shaping the future!
 
Aðgengi hvar sem er, hvernig sem er og fyrir réttan aðila um sín viðskipti er það sem skiptir máli í hratt vaxandi viðskiptaumhverfi. Með CRM í skýinu þá er verið að tryggja aðgengi að gögnum hvaðan sem er í heiminum án hýsingarumstangs sem fylgir venjulegum rekstri. Ekki er verra að þetta er líka mikið ódýrara!
 
Gagnaöryggi gagnvart hættum af Internetinu: Hvernig kem ég í veg fyrir að mikilvæg gögn leki út?
 
Á upplýsinga- og þjónustuveitunni Ísland.is hafa verið þróaðar ýmsar lausnir sem opinberum aðilum býðst að nýta sér með litlum sem engum tilkostnaði. Má þar nefna miðlæga auðkenningu, þjónustu fyrir rafræna móttöku umsókna og annarra skjala, þjónustu fyrir rafrænar bréfasendingar opinberra aðila og fleira. Fjallað verður um þessar lausnir og þann fjárhagslega ávinning og hagræðingu sem innleiðing þeirra getur haft fyrir stofnanir og sveitarfélög.
 
Er kreppan að gera opinbera starfsmenn glaðari? Fjallað verður um samdráttaraðgerðir frá kreppu í opinberum rekstri og einkarekstri hér á landi og áhrif þeirra á upplifun starfsmanna, auk þess sem rætt verður um þátt stjórnenda í að viðhalda starfsánægju, hollustu og upplifun á stuðningi og sanngirni.
 
10.50
11.25
Miklar umræður hafa verið um rafræn viðskipti og pappírslausa vinnustaði í gegnum árin, en menn spyrja sig er það mýta eða raunveruleiki? Í þessum fyrirlestri verður farið yfir rafræna ferli með tækjum og tólum frá Skýrr, meðal annars ÓPUSallt 2001 og sýnt fram á hvernig hægt er að stunda allan rekstur án pappírs.
 
Come and listen to how EMC can help you automate various business processes as well as share insight into how better customer communications can enhance customer loyalty and experience.
 
Fyrirtæki hafa í gegnum árin fyrst og fremst skráð þekkingu og upplýsingar inn í formleg upplýsingakerfi og flokkað skjöl í skjalakerfi. Þær upplýsingar sem þar eru aðgengilegar eru hins vegar einungis hluti þeirrar þekkingar sem er að finna innan fyrirtækjanna – restin liggur  hjá starfsmönnunum. En hvernig finnum við hana og hvernig geta starfsmenn deilt uppgötvunum sínum og reynslu? Utan vinnu nota menn samskiptamiðla eins og LinkedIn, Facebook og Twitter, nú eru þessar aðferðir einnig að ryðja sér til rúms innan veggja fyrirtækjanna.  Sýnd verða dæmi byggð á útfærslum í SharePoint 2010.
 
Work securely from our mobile devices. As a respond to the demands on the market IT vendors have been moving their focus to the mobile platform. As a result web traffic and service usage increasingly originates from mobile devices which are being used to access sensitive enterprise resources. In this presentation Tom Widegren will present how we can work securely from our mobile devices. Use your mobile device as an authentication device and even enable signing and encryption on the mobile device itself.
 
Virk mannauðsstjórnun eflir innviði fyrirtækja og eykur samkeppnisforskot. Umsókna- og ráðningakerfi Skýrr er veflausn, hönnuð með það fyrir augum að fullvinna starfsumsóknir frá upphafi til enda á markvissan hátt.
 
Ákvarðanir stjórnenda stjórnast af tölfræði, fyndinni sjálfsmynd og duttlungafullum ákvörðunum.
 
11:25
12:10

Matarhlé

12.10
12.45
Á undanförum árum hefur upplýsingatæknin orðið sífellt mikilvægari til að ná fram sparnaði í rekstri fyrirtækja. Vinnuborð, rafræn samskipti, skilvirkni og vinnusparnaður eru allt orð sem við getum notað þegar við lýsum þeim ferlum sem farið er eftir í NAV sérkerfum Skýrr. Hér verður farið þvert yfir sérkerfin og dregnir fram áhugaverðir möguleikar sem þú getur notað til hagræðingar í þínu fyrirtæki.
 
The new SAP BusinessObjects Enterprise Performance Management solutions help companies improve effectiveness and performance Control. In order to succeed, you need to close the gap between strategy and execution by cascading corporate goals down into department-relevant metrics; ensuring accountability; enabling trusted reporting and analysis; and streamlining execution of strategy – guided and risk-aware plans. The latest release of SAP BusinessObjects enterprise performance management solutions are designed specifically to help you meet these challenges and leverage new technologies to transform the way we work.
 
Hinn dæmigerði Íslendingur fær tugi ef ekki hundruði tölvupósta á dag, ógrynni símtala og talhólfskilaboð. Á sama tíma þarf hann að halda utan um þéttsetinn dag af fundum, fjölskylduviðburðum og öðru félagslífi. Á þessum fyrirlestur verður farið yfir almennar og góðar reglur í tímastjórnun / árangursstjórnun og jafnframt hvernig Microsoft Office getur orðið áhrifaríkt tól til þess að ná enn frekari árangri í leik og starfi.
 
Útvistun í íslenskum þjónustufyrirtækjum getur haft í för með sér aukna þjónustu við viðskiptavini og betri kjarnafærni, ásamt því að lækka kostnað. Fyrirlesturinn byggir á rannsókn meðal tæplega 400 íslenskra þjónustufyrirtækja
 
Integrating contract management in the procurement process. How to author and negotiate contracts with embedded legal terms and conditions. Secure these are used in all daily purchases. Resulting in reduced spend and contract leakage, and complying to internal and external rules and policies
 
Teymi frá Háskólanum í Reykjavík hafnaði nýverið í fjórða sæti í hinni árlegu ROBOSUB-kafbátakeppni sem haldin var í flotastöð bandariska sjóhersins í San Diego. Að kafbátaverkefninu standa nemendur í tölvunarfræði og verkfræði við Háskólann í Reykjavík auk leiðbeinenda. Smíðaði hópurinn sjálfstýrðan kafbát sem nefnist Freyja. Í þessum fyrirlestri verður sagt frá verkefninu og kafbáturinn sýndur.
 
12.55
13.30
Here will Per Christensen show a brand new presentation, going through Microsoft new revised strategy for Dynamics NAV.
 
Join Dr. Morten Middelfart, the double Ph.D., author, global thought leader, and creator of TARGIT BI Suite, for an exploration of his latest research on Computer Aided Leadership & Management (CALM). Learn the fundamentals of the CALM philosophy and discover ways your company’s Business Intelligence (BI) solution should be used to accelerate decision making, increase operational awareness, and improve performance across the organization.
 
Leyfi fyrir Microsoft SharePoint eru þegar til hjá mjög mörgum fyrirtækjum landsins (oft sem hluti af öðrum Microsoft leyfum, jafnvel án þess að þau viti af því) en notkunin í litlu samræmi við það. Það sem helst veldur því er skortur á tilbúnum lausnum sem hægt er að byrja að nota á einfaldan hátt. Skýrr hefur í samstarfi við Hands AS í Noregi þróað tilbúnar lausnir fyrir skjalamál, verkefni/mál, samninga og fleira.
 
Hvar liggja gögnin þín og hvernig eru þau geymd? Primus hefur áralanga reynslu í að koma inn í fyrirtæki og greina gögn fyrirtækja með það að leiðarljósi að nýta betur geymslupláss og hvernig gögnum er best komið fyrir þannig að sóknarhraði í þau gögn sem mest er verið að nota sé sem mestur, ekki missa af þessum fyrirlestri hann leynir á sér.
 
Getum við kosið rafrænt í næstu kosningum? Eru rafrænar kosningar hættulegar lýðræðinu? Er hægt að framkvæma rafrænar kosningar með öruggum hætti? Farið verður yfir mismunandi möguleika á útfærslu rafrænna kosninga og reynslu Eista af rafrænum kosningum. Einnig verður sýnt hvernig má setja upp trausta rafræna undirskriftarlista þannig að hægt sé að treysta því að þeir séu réttir.
 
Fjallað um Office 365 sem er ný vara frá Microsoft. Með Office 365 geta fyrirtæki stofnanir, félagasamtök og einyrkjar keypt sér mánaðaráskrift af hinum sívinsæla Office pakka með netáskrift. Þetta getur lækkað kostnað og auðveldað fjarvinnu starfsmanna. Fjallað er um nýjungar í Office 365, áskriftarleiðir og innleiðingu.
 
13.40
14.15
SharePoint is a companion to Microsoft ERP systems such as Dynamics AX.  Microsoft has made 80 SharePoint roles and a number of web-parts that take information from the ERP and other systems. This gives you the possibility to target the relevant information to different employee roles and drive your business to another level.
 
Ineffective internal controls are costing organizations millions, but more manual controls won't solve the problem. Oracle's GRC products have out-of-the-box rules for Procure-to-Pay, Order-to-Cash and other business processes to help you quickly implement Automated, Continuous, Preventative and Detective internal controls inside your Oracle EBS environment. Come hear how Oracle GRC can help you optimize your processes today!
 
See how Lync 2010 together with Exchange 2010 can give your company a complete fully integrated solution for all communication. We show our own production environment and also share our experiences from the field
 
Hvað býr að baki Google Apps og Amazon EC2? Hver er tæknileg undirstaða tölvuskýja? Hvað er það nýjasta úr rannsóknarheiminum? Ýmir mun fræða okkur um það hvernig tölvuský urðu til, hvers vegna þau virka og kynna okkur ferskar hugmyndir af akademískum ráðstefnum um þau. Fyrirlesturinn mun henta öllum forvitnum um Cloud Computing.
 
Það er mikið fengið með samkomulagi á markaði um ýmis viðmið sem segja má að liggi til grundvallar í rafrænni veitingu á þjónustu. Í samstarfi atvinnulífsins og hins opinbera hefur verið lagður grunnur að samkomulagi um tæknileg viðmið í rafrænni þjónustu. Nú er verið að ganga frá fyrstu útgáfu svokallaðrar landsumgjarðar um samvirkni þar sem fókus er annars vegar á viðmið fyrir miðlun vefþjónustu á mótuðum gögnum og viðskiptaskeytum og á viðmið fyrir dreifilyklaskipulag og notkun rafrænna skilríkja, meðal annars fyrir rafrænar undirskriftir.
 
Mobile devices offer a genuine opportunity for users to work productively while on the move. But do they pose a greater security risk? How can you be certain that your organization’s data is fully protected when users access corporate information from a mobile device? Using real-world customer examples Cryptzone will demonstrate how to assure users of iOS and Android devices are given the right access to corporate information and network applications quickly, easily and securely.
 
14:15
14:30

Kaffi

14.30
15.05
Öflug verslunarlausn, byggð ofan á viðskiptalausnina Microsoft Dynamics AX. Betri yfirsýn á verslunarhluta, verkflæði og samskipti við afgreiðslukassa.
 
Alcoa hefur í samstarfi við Skýrr þróað SharePoint Business Intelligence umhverfi sem mætir þörfum innkaupateymis Alcoa. Óskar mun fjalla um hvers vegna SharePoint BI var valið, en Alcoa hefur þörf fyrir að vera með yfirsýn yfir öll gögn, þeir gera kröfu um að gögnin séu „glæný“ og að kerfið sé sveigjanlegt og einfalt. Ólína mun sýna virkni SharePoint BI hjá Alcoa.
 
Að hverju þarf að huga við gerð Mobile vefja, af hverju að vera með mobile vef.
 
VMware has released the next generation of vSphere with new features and updates. We will cover what we see as the important parts focused on small/medium companys. It will be covered on a pre-sales level. Not technical, but there will be a chance to ask technical questions after.
 
Landspítali leggur ríka áherslu á skilvirkni verkferla til þess að bæta þjónustu við viðskiptavini hans og auka öryggi þeirra. Fyrir utan klíníska verkferla hefur sérstök áhersla hefur verið lögð á vörustjórnun. Kynnt verður hvernig Landspítali hefur gert rafræn sín innri og ytri innkaup, sölu og birgðastýringu og áhrif þess á starfsemina s.s. vinnu- og tímasparnað. Hver er framtíðarsýnin, hvaða möguleikar eru að opnast?
 
Upplýsingaleki er sérhvert tilfelli þar sem að upplýsingar einstaklinga eða fyrirtækja komast í hendur óviðkomandi aðila. Mörg slík atvik hafa komist í fréttir síðustu misserum bæði hérlendis (lánabók Kaupþings) sem erlendis (CableGate). Hverjar eru orsakir slíkra leka, hvaða áhrif geta þeir haft á þá sem fyrir þeim verða og hvernig skal verjast því að slíkt eigi sér stað. Fjarvinna, snjallsímar, töflutölvur og tölvuský skapa bæði ný tækifæri og nýjar ógnir sem geta orðið til að upplýsingar okkar bendi á óviðeigandi stöðum.
 
15.15
15:50
Innleiðing á CRM 2011 með partner portal og tengingar við önnur innanhúss kerfi
 
Landspítali þarfnast ítarlegra starfsmanna og mönnunarupplýsinga og byggði mannauðsvöruhús ofan á starfsmannagögn Orra. Helsti ávinningur þess er að nú er hægt að tengja upplýsingar Orra kerfisins við aðrar starfsemisupplýsingar spítalans. Í dag er rafrænum skýrslum úr starfsmannakerfi, launakerfi og vinnustund dreift með Business Objects á um 200 stjornendur á LSH og nýir möguleikar hafa opnast í samtengingu við gögn úr öðrum kerfum spítalans. Reynslusaga og kynning á lausninni.
 
Vefþjónustur eru sívaxandi hluti upplýsingakerfa fyrirtækja. Það hefur sýnt sig að því stærra sem þetta umhverfi er því erfiðara er að hafa yfirsýn yfir þær þjónustur sem eru í rekstri. Erfitt getur verið að gera sér grein fyrir hverjir nota þær og hvenær. Hér verða kynntar lausnir sem auðvelda þessa yfirsýn og gera vefþjónustulagið skilvirkara, auðveldara í rekstri og öruggara bæði út frá rekstrarlegum þáttum og auðkennislegum.
 
Microsoft SharePoint® is a powerful tool for collaboration and content management, but it lacks inbuilt capabilities for strong encryption and efficient user rights management. Using real-world customer examples Cryptzone will demonstrate how easy it is to automate encryption of corporate data within the collaboration platform, so document access is restricted to authorized users and personal and sensitive information is protected.
 
Kynnt verður ný virkni sem kom með útgáfu 12 og er afstemming biðreikninga í GL. Einnig verður farið yfir afstemmingu bankareikninga og þær breytingar sem urðu á CE með tilkomu útgáfu 12.
 
Hvernig hefur hönnun áhrif á okkur, hvaðan kemur sköpunargleðin, hvernig miðlum við henni og hvaða áhrif hefur það á notandann. Farið verður yfir nýjustu strauma og stefnur í grafík og vefhönnun.
 
16:00
16:35
Accounting Integration is the centralized framework, which is used to integrate accounting events from source systems to “SAP Financials” & “Enterprise Data Warehouse”. Built on the webMethods Integration Environment, the framework is designed in a generalized way, so that it can be reused to integrate accounting events of any new system. For accounting users, it gives the ability to trace the balances to trade, to reconcile the accounting data at different level and the feature to make the corrections
 
Heimurinn er fullur af gögnum. Umhverfi okkar, efnahagskerfi, fyrirtækjarekstur, stjórnkerfi, ferðalög og fjármál heimilanna, allt þetta er mælt á ýmsa vegu og gögn hlaðast upp í gagnagrunnum, sem því miður liggja oft lítið notaðir og engum til gagns. Staðreyndin er samt sú að í öllum þessum gögnum búa svör við ýmsum spurningum sem við kunnum að vera forvitin um. Með réttum tólum og tækjum má með lítilli fyrirhöfn ná allskyns upplýsingum út úr gögnum sem þessum og setja þau fram með hætti sem auka skilning og vekja áhuga. Í þessum fyrirlestri verður farið yfir nokkur dæmi um áhugaverðar spurningar og hvernig hægt er að nota fyrirliggjandi gögn til að svara þeim - stundum með óvæntri útkomu.
 
Hvað er app? Hvernig smíðar maður app og af hverju skyldi maður smíða app? Í þessum fyrirlestri fer einn af aðstandendum sprotafyrirtækisins Stokkur Software yfir app-bransann, hvernig hann hefur þróast og hvernig hann mun þróast. Helgi fer yfir raunveruleg dæmi og veitir okkur innsýn inní hugbúnaðargerð fyrir farsíma og spjaldtölvur.
 
Securing your journey to the Cloud. Virtualization technologies have enabled more dynamic datacenters and the potential for cost reductions on more than hardware. After building the modern datacenter, the private cloud, the next step for many customers will be to deploy public cloud services. Customers are in different stages along this journey to the cloud and meet different obstacles and objections on their way, technical issues, regulations, time pressure and emotional resistance. When cost reduction is in the area of 1/10 for virtualization and 1/100 for cloud services, why wait? Where is the problem? There are lots of benefits and future potentials in implementing private, hybrid and public cloud, but change of operation models also introduces new challenges that must be met.
 
Almenn kynning á verkefnastjórnun í verkbókhaldi Orra. Uppsetning á vinnuáætlun og yfirsýn yfir verkefni.
 
Farið er yfir notkun VÍS á Open Source lausnum, stefnumótun í OS málum, hvaða viðmiðunarreglur þeir hafa sett sér við notkun slíkra lausna og aðra mikilvæga þætti í því að ná árangri með opnum hugbúnaði.
 
16:45
17:45