Afgreiðslulausnir

Fyrsta flokks afgreiðslukerfi og þjónusta

Í nútímaviðskiptum er gerð krafa um hnökralausa afgreiðslu. Þjónusta við viðskiptavini er lykilatriði í öllum rekstri og það getur verið flókið að samræma þarfir viðskiptavina og þeirra kerfa sem halda utan um reksturinn. 

Advania hefur áratuga reynslu í að einfalda ferli og setja upp lausnir sem henta fyrirtækjum af öllum gerðum. Samstarfsaðilar Advania eru heimsþekkt fyrirtæki í fremstu röð afgreiðslulausna, um er að ræða fyrirtæki eins og NCR, Pricer, Talaris, De La Rue og Q-Matic sem eru leiðandi í afgreiðslukerfum á heimsvísu. Einnig þjónustum við flesta hraðbanka og peningatalninga- og flokkunarvélar landsins.

Afgreiðslubúnaður

Við hjá 10 - 11 rekum fjölda verslana sem eru opnar allan sólarhringinn. Stór þáttur í okkar velgengni er skjót þjónusta og þar skiptir öllu máli að afgreiðslukerfið sé í lagi. 10-11 hefur um áraraðir treyst á afgreiðslulausnir Advania með góðum árangri. Ég mæli hiklaust með samstarfi við Advania.
  • Unnar Reynisson
  • Umsjónarmaður upplýsingakerfa 10-11
Það eru engar vörur í körfunni