TOK Laun

Yfirsýn með fullkomnu launakerfi

TOK launakerfi er sérhannað fyrir íslenskar aðstæður. Kerfið sparar þér tíma og auðveldar vinnuna. TOK launakerfið er hagkvæmt í rekstri og hægt er að byrja smátt, með 3ja launþega kerfi og stækka svo í þrepum eftir því sem fyrirtækið vex og dafnar.

 

Helstu kostir TOK launakerfisins

  • Hentar fyrirtækjum af öllum stærðum og er einfalt í uppsetningu.
  • Rafrænir launaseðlar, staðgreiðsla og launatengd gjöld
  • Flott utanumhald á orlofi og fjarvistum.
  • Launakostnaður sundurliðaður niður á deildir og verkefni
  • Reiknað endurgjald
  • Öflugar skýrslur

Ummæli viðskiptavinar
TOK Laun er auðvelt í notkun og við erum hæstánægð með kerfið.
  • Erla Björg Garðarsdóttir, launafulltrúi hjá Fjarðarkaupum

Tilbúið launafyrirtæki með greiðslutegundum

Upplýsingar um starfsmenn skráir þú í launþegaupplýsingarnar. Fyrst og fremst er um skráningu persónuupplýsinga, skattkort og launakjör að ræða. Þú velur stærð á launakerfinu í samræmi við fjölda launþega.  Minnsta launakerfið er fyrir hámark 3 launþega og það stærsta fyrir ótakmarkaðan fjölda starfsmanna. Með hjálp fastra launaseðla þarf aðeins að yfirfara og skrá þá launaliði sem eru breytilegir í launaútreikningnum eins og t.d. fjöldi tíma eða veikindadagar.

Sjálfvirkur launaútreikningur

Með TOK launum fylgir uppsett launafyrirtæki með greiðslutegundum og flokkum fyrir mánaðarlaun, dagvinnulaun, yfirvinnulaun, hlunnindi, orlof, staðgreiðslu o.s.frv.  Hægt er að stofna greiðslutegundir fyrir hvern starfsmann með því að afrita greiðslutegundirnar sem eru til staðar eða stofna nýjar með hjálp flokka.

Helstu kostir TOK launakerfisins

  • Hentar fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum
  • Einfalt í uppsetningu
  • Tilbúið launafyrirtæki fylgir með greiðslutegundum
  • Reiknað endurgjald
  • Heldur utan um orlof
  • Flutningur yfir í fjárhagsbókhald
  • Hægt að skipta launakostnaði niður á víddir:  deildir og verkefni
  • Rafrænir launamiðar, launamiðar í skrá og launaframtal
  • Heldur utan um fjarvistir starfsmanna
  • rafrænir launaseðlar
  • Rafræn skil á staðgreiðslu og launatengdum gjöldum
  • Innlestur úr tímaskráningarkerfum beint í dagbók
  • Fjöldi skýrslna
  • Gögn fyrir Kjararannsóknanefnd


Einfalt og þægilegt í hverjum mánuði

Stuttu fyrir útborgun launa er búin til ný launakeyrsla.  Þar sem fastir launaseðlar eru þegar til í kerfinu þarf aðeins að færa inn á þá launaliði sem hafa breyst. Að því loknu þarf aðeins að gera fimm einfaldar aðgerðir:
  • Listun launa
  • Prentun launaseðla
  • Afritaka og uppfærsla launa
  • Prentun skilagreina
  • Gögn færð í fjárhagsbókhald
  • Enginn tvíverknaður

Þar sem allar upplýsingar um launaútreikning eru vistaðar í TOK launum tekur aðeins nokkrar mínútur að ganga frá launamiðum og launaframtali í lok árs. Hægt er að senda þessi gögn rafrænt til skattstjóra.


Mikið úrval af skýrslum

Kerfið býður upp á mikið úrval af skýrslum. Fyrir utan skýrslur sem varða launaútreikninginn beint er einnig að finna lista yfir heimilisföng, símanúmer og afmælisdaga starfsmanna. Mjög einfalt er einnig að flytja skýrslur í skrá til að vinna áfram í Excel.

TOK þjónusta gerir lífið léttara

Með því að bæta við þjónustusamningi tryggir þú þér aðgang að ráðgjöf, reglulegum uppfærslum og ýmsu öðru sem auðveldar þér lífið í þínum daglega rekstri.

Þjónustuver TOK - 440 9900

TOK þjónustuverið er opin frá kl. 9 til 17 virka daga. Þar svarar starfsfólk TOK þjónustunnar þínum spurningum, aðstoðar og styður við þig og þína starfsemi. Kannski hefur eitthvað breyst í verkferlum fyrirtækisins, þú þarft að vinna aðgerð sem þú gerir sjaldan, eða nýr starfsmaður hefur hafið störf?

Fræðsla

TOK Viðskiptavinir með þjónustusamning fá eitt frítt námskeið fyrir einn starfsmann á ári ásamt 15% afslátt af öðrum námskeiðum sem Advania býður upp á.
 
Uppfærslur

Þegar þú kaupir TOK Laun, samræmist kerfið þeim lögum og reglugerðum sem gilda þegar kerfið er keypt.  Hins vegar breytist markaðsumhverfi fyrirtækja stöðugt og hafa þessar breytingar bein áhrif á daglegan rekstur fyrirtækja. Með þjónustusamningi getur þú verið viss um að kerfið þitt sé í takt við þau lög og reglugerðir sem gilda á hverjum tíma.
 
Margt fleira...

Að auki er margt fleira innifalið í þjónustusamningi. Þar á meðal er 15% afsláttur af útseldri vinnu og fjartengingum, rafrænt fréttabréf TOK, fræðslumorgnar og margt fleira.

  • Hvað geri ég ef ég lendi í vandræðum?
    Þjónustudeild okkar er ætíð tilbúin að liðsinna þér ef þú lendir í einhverjum vandræðum. Hægt er að hafa samband við okkur í síma 440 9900.
  • Er erfitt að nota TOK laun?
    Nei, markmið þróunar á TOK launum er ætíð að reyna að gera vinnu við launaútreikning einfalda og þægilega.
  • Er hægt að vera með fleiri en einn notanda inni í TOK launum í einu?
    Já, þú kaupir einfaldlega leyfi fyrir fleiri notendur.
  • Verð ég að kunna allt um laun til að geta notað TOK laun?
    Launakerfi geta aldrei gert allt og þarft þú t.d. að geta sett inn launakjör einstakra starfsmanna í samræmi við kjarasamninga og lög sem gilda. Ákveðin grunnþekking er því nauðsynleg. Þú getur aflað þér þessarar þekkingar, t.d. með því að hafa samband við samtök atvinnurekenda, Ríkisskattstjóra og lífeyrissjóði.
  • Er hægt að nota TOK með öðrum kerfum eins og t.d. tímaskráningarkerfum?
    Já, hægt er að lesa inn skrár úr Bakverði, Tímon, Marel og fleiri tímaskráningarkerfum. Einnig er hægt að senda upplýsingar um launauppgjör yfir í TOK bókhaldskerfin , Microsoft Dynamics Ax (Axapta), Navision, TOK plús og fleiri bókhaldskerfi.
  • Hvaða stýrikerfi þarf til að keyra TOK laun?
    Við mælum með Windows 7 fyrir nýjustu útgáfurnar af TOK launum.
  • Get ég stækkað TOK laun ef starfsmönnum fjölgar?
    Já, þú getur alltaf uppfært í stærra kerfi þegar að því kemur. Við tökum einfaldlega hitt kerfið upp í.
  • Hvernig læri ég að nota TOK laun?
    Öflug vefhjálp er inn í TOK launakerfi og eru hjálparhnappar um allt í kerfinu sem aðstoða við notkun. Einnig bjóðum við upp á námskeið í notkun kerfanna.
  • Get ég sjálf(-ur) sett upp TOK laun?
    Já, TOK laun eru sótt beint inn á mínar síður hér á síðunni.
  • Hvernig veit ég hvaða kerfi ég þarf?
    Við viljum að þú veljir rétta stærð af TOK launum, hvorki of lítið né of stórt. Minnsta launakerfið er fyrir hámark 3 launþega og það stærsta fyrir ótakmarkaðan fjölda starfsmanna.

Kerfiskröfur fyrir TOK Laun

Uppsetning
Kerfiskröfur
Stýrikerfi

TOK PSQL v11 miðlari
4 gb. vinnsluminni
80gb. diskapláss
XP/2003/Vista/
2008/Windows 7
TOK PSQL v11 vinnustöð*
2 gb. vinnsluminni
40gb. diskapláss
XP/2003/Vista/
2008/Windows 7

* Ef fjöldi notenda er orðinn meiri en 3 mælum við með því að settur sé upp sérstakur netþjónn með afritunarkerfi.