Rafræn skilríki

Til að fá rafræn skilríki þarf einungis að gefa upp nafn og gilt netfang. Þegar greiðsla hefur borist eru skilríkin gefin út. Tengsl milli netfangs og nafns eru ekki könnuð, því staðfesta þessi skilríki eingöngu að um rétt netfang er að ræða. Rafræn skilríki virka að öllu leiti eins og fullgild rafræn skilríki, að því frátöldu að ef skrifað er undir með skilríkjunum hefur sú undirskrift ekkert lagalegt gildi. Árgjald: 25 USD án vsk.

Sækja um rafræn skilríki

 
 

Vottuð rafræn skilríki

Þegar sótt er um vottuð rafræn skilríki, er ekki nóg að fylla út umsókn á Netinu. Umsækjandi þarf að koma til Advania og sína gild persónuskilríki í votta viðurvist og staðfesta komu sína með undirskrift sinni. Þannig er staðfest að viðkomandi sé sá sem hann segist vera. Að vottun lokinni eru vottuðu rafrænu skilríkin gefin út. Vottunarferlið fyrir vottuð rafræn skilríki er það strangt að telja má 100% öruggt að handhafar slíkra skilríkja séu þeir sem þeir segjast vera. Vottuð rafræn skilríki eru því óvéfengjanleg bæði gagnvart lögum og í rafrænum viðskiptum. Árgjald: 80 USD án vsk.

Sækja um vottuð rafræn skilríki
Það eru engar vörur í körfunni