Hugbúnaður fyrir stafræna upplifun
Hugbúnaðarframleiðandinn Adobe sérhæfir sig í því að breyta heiminum með stöðugum framförum á stafrænni upplifun. Fyrirtækið er ekki eingöngu að endurskilgreina það hvernig vefsíður, bæklingar, kvikmyndir, ljósmyndir og fleira er hannað og unnið heldur einnig það hvernig neytendur nútímans eiga samskipti við fyrirtæki í gegnum nýja miðla og með því að nýta tæknina til hins ýtrasta.
Helstu kostir Adobe hugbúnaðarins
- Yfir 90% af fagmönnum í hönnunargeiranum nota Photoshop.
- Lausnir Adobe aðstoða hönnuði, þróunaraðila og fyrirtæki við það að skapa, birta og kynna efni á öllum mögulegum tegundum af miðlum.
- Adobe býður notendum uppá mikið magn af kennsluefni
Vantar þig ráðgjöf varðandi leyfafyrirkomulag?
Ekki hika við að hafa samband við ráðgjafa Advania. Advania er eini vottaði söluaðiði Adobe á Íslandi og eina fyrirtækið sem hefur tilskildar vottanir til að selja Creative Cloud og CLP leyfin á Íslandi.
Viltu prófa hugbúnaðinn frítt í 30 daga?
Hægt er að nálgast prufu-útgáfur af öllum helsta hugbúnaði frá Adobe hér.
Adobe VIP Creative Cloud áskriftarsamningar
Nýjasta útspil Adobe Skapandi ský er ný nálgun á því hvernig fyrirtæki kaupa aðgang að nýjustu útgáfum af lausnum frá Adobe. Áskriftarsamingarnir eru til eins árs í senn.Hugbúnaðurinn sem slíkur er keyrður líkt og vanalega á vélbúnaðinum hjá notanda en öll umsýsla á notendum og gögnum á sér stað miðlægt í skýinu.
Adobe TLP magnkaupasamningar
Algengasta kaupformið á Adobe leyfum undanfarin ár eru TLP magnkaupasamningar. Allur hugbúnaður er aðgengilegur í gegnum netið.
Samningarnir henta:
- Einstaklingum
- Fyrirtækjum
- Stofnunum
- Skólum
Adobe CLP magnkaupasamningar
CLP magnkaupasamingur er kaupfyrirkomulag fyrir mikið magn af hugbúnaðarleyfum. Þeir aðilar sem kaupa fyrir 10.000 Adobe punkta eða meira komast inn á CLP samingsform sem veitir lægra verð frá Adobe. Allur hugbúnaður er aðgengilegur í gegnum netið.