S5 Hugbúnaðarkerfið

S5 er hugbúnaður til að búa til sérsniðnar veflausnir

S5 er byggður upp á stökum einingum sem raða má saman og búa til sérsniðna hugbúnaðarlausn án mikils tilkostnaðar, en hægt er að spara mikla forritunarvinnu með því að nota S5 í stað þess að skrifa tölvukerfi frá grunni.

Helstu eiginleikar S5:

  • Sveigjanlegar lausnir án forritunar
  • Verkferlar og vinnsla mála
  • Stillanlegt viðmót og ferlar
  • Góð hjálp
  • Öflugar aðgangsstýringar
  • Skjalavistun
  • Vensl Gagna
  • Sveigjanlegar sýnir á gögn
  • Rekjanleiki
  • Rafrænar undirskriftir
  • Virkar fyrir algengustu vefrápara
  • Engin biðlarauppsetning
  • Samhæfing við MS Office
  • Öflug leit í gagnagrunni og fylgiskjölum
  • Skráning og umsjón tölvupóstssamskipta
  • Sjálfvirkar áminningar og tilkynningar
  • Umsjónarkerfi fyrir uppsetningar og stillingar

Tæknilegt umhverfi:

  • Stuðningur við algengustu vefrápara
  • MS-SQL gagnagrunnur
  • Tengingar við MS-Exchange og Lotus Notes póstþjóna
  • Þróað í .NET og C#

S5 hentar sérstaklega vel fyrirtækjum sem þurfa að halda utan um hverskyns verkefni og þjónustu. Nútíma kröfur um gæðavinnubrögð krefjast þess að mál séu afgreidd fljótt og vel, það sé hægt að rekja feril þeirra og sjá stöðu þeirra. S5 er afar sveigjanleg þjónustulausn sem leysir þetta verkefni og er auðvelt að aðlaga að mismunandi kröfum og ferlum. S5 byggir á svokölluðum borðum og hefur hver uppsetning sitt borð.  Á skömmum tíma er til dæmis hægt að setja upp verkbeiðnakerfi, skjalastjórnunarkerfi eða málakerfi sem er fullkomlega aðlag að þörfum fyrirtækisins.

S5 er veflausn og því aðgengileg öllum skilgreindum notendum sem aðgang hafa að veraldarvefnum. Í stað þess að kaupa S5 lausn, getur viðskiptavinur leigt aðgang að lausninni, sem þá er hýst hjá Advania.

Það eru engar vörur í körfunni