Gæðakerfi
S5 Úttektir er notendavænt og heildstætt hugbúnaðarkerfi til þess að skipuleggja og halda utan um framkvæmd og eftirfylgni gæða- og öryggisúttekta. Kerfið nýtist meðal annars fyrirtækjum og stofnunum sem vinna eftir ferlum gæðakerfis eða öryggisstjórnkerfis, sinna eftirliti eða eru í eftirlitsskyldri starfsemi.
Helstu kostir S5 Úttekta eru
- Betra og skilvirkara skipulag á úttektum og eftirlitsverkum og virkara gæðakerfi
- Góð yfirsýn yfir bæði fyrirliggjandi og yfirstaðnar úttektir
- Möguleikar á ítarlegri greiningu frávika og athugasemda
- Markvissari stjórnun úrbóta/aðgerða í kjölfar úttektar
- Auðvelt er að aðlaga kerfið að sérþörfum einstakra fyrirtækja
- Kerfið er einfalt í uppsetningu og auðvelt í viðhaldi
- Kerfið býður upp á margvíslegar sýnir á gögn, tölfræðiúrvinnslu og veitir greinargott yfirlit um stöðu gæða- og öryggismála fyrirtækisins hverju sinni
- Kerfið er bæði á íslensku og ensku
Í S5 Úttektum er meðal annars hægt að:
- Útbúa úttektaáætlanir fyrir starfsemina í heild eða ákveðna þætti hennar
- Útbúa gátlista vegna undirbúnings úttekta
- Útbúa úttektarskýrslur sem innihalda niðurstöður úttekta
- Skrá og halda skipulega utan um frávik og athugasemdir sem fram koma við úttektir
- Fylgja eftir nauðsynlegum úrbótum/aðgerðum vegna frávika og athugasemda
- Stilla sjálfvirkar áminningar til að fyrirbyggja að afgreiðsla úttekta og frávika/athugasemda tefjist að óþörfu eða dagi uppi
- Útbúa nýjar úttektaáætlanir með því að afrita eldri áætlanir og síðan uppfæra á fljótlegan hátt
Veflausn
S5 Úttektir er veflausn og því aðgengilegt öllum skilgreindum notendum sem aðgang hafa að veraldarvefnum. Viðmót kerfisins er notendavænt og auðvelt er að læra á það. Kerfið uppfyllir kröfur gæðastaðalsins ÍST ISO/IEC 9001 og öryggisstaðalsins ÍST ISO/IEC 27001 og nýtist bæði við innri úttektir sem og viðhaldsúttektir vottunarfyrirtækja.