Visita

Ásgerður I. Magnúsdóttir
5695971

Skráningarkerfi fyrir gestamóttöku

Visita er einföld og ódýr lausn fyrir gestamóttöku í fyrirtækjum og stofnunum. Kerfið er fljótlegt í uppsetningu og hagkvæmt í rekstri.

Með Visita er gert ráð fyrir að gestir geti skráð sig inn á tölvu sem er staðsett í afgreiðslu fyrirtækisins. Skráningar færast í gagnagrunn og starfsmenn afgreiðslu staðfesta komu og brottför gesta í gegnum umsjónarvef á innraneti sem þeir hafa aðgang að. Jafnframt prentast út miðar með upplýsingum um gesti sem þeir bera á sér meðan þeir eru í húsnæði fyrirtækisins.

Helstu kostir: 

  • Hægt að fá yfirlit yfir hverjir eru í húsinu á hvaða tíma
  • Tímasparnaður þar sem ekki þarf að skrá gesti sérstaklega
  • Nútímalegt fyrirkomulag
  • Gestir fá spjöld með sínu nafni
  • Skráð hvaða gestur er á ábyrgð hvaða starfsmanns, eykur öryggi