Nýttu þér sérþekkingu okkar
Advania sérhæfir sig í að útfæra lausnir fyrir smátæki, spjaldtölvur og snjallsíma. Forritaður er hugbúnaður fyrir Android, iPhone og Windows Mobile. Þekking okkar spannar allt frá greiningu og hönnun til útfærslu og útgáfu. Unnið er í nánu samstarfi við útlitshönnuði Advania sem hafa langa reynslu af hönnun á notendaviðmóti.
Meðal verkefna okkar eru lausnir fyrir viðskipta- og bókhaldskerfi, heilbrigðissvið, almennar upplýsingaveitur auk sérsmíði fyrir viðskiptavini.
Dæmi um verkefni okkar fyrir snjallsíma og spjaldtölvur:
App fyrir GSM bensín
Í samstarfi við GSM bensín hefur Advania smíðað Android app sem veitir upplýsingar um verð á bensíni og nálægð notanda við næstu bensínstöð.
Diana
DIANA appið veitir aðgengi að dagskrá / stundaskrá sjúklinga og þjálfara. Diana appið er hluti af stærra sjúkraskrárkerfi. Lausnin keyrir bæði á spjaldtölvum og snjallsímum. Þar er hægt að:
- Skrá sjúklinga og þjálfara í og úr hóp.
- Merkja við mætingar sjúklinga
- Skoða stundatöflur þjálfara og sjúklinga
Öryggislausnir
Öryggislausnir hafa útfært lausn fyrir fyrirtæki í viðskiptum við Advania sem vilja fá örugga gagnatengingu úr smátækjum og símum í sín upplýsingakerfi. Eins og er, er þessi þjónusta eingöngu í boði fyrir viðskiptavini Símans.
Advania kom að gerð Orku-appsins. Vefþjónustur og síður eru tengdar beint við LiSA Live vefumsjónarkerfið.