Launakerfi

Oracle launakerfið er fjölhæft launakerfi sem hentar vel stórum fyrirtækjum með marga starfsmenn og mismunandi samninga og launakjör. Kerfið hefur verið aðlagað íslenskum aðstæðum, til dæmis vegna samninga við stéttarfélög, notkunar á skattkortum og aðildar að lífeyrissjóðum. 

Kerfið hefur vefrænt notendaviðmót eins og aðrir kerfishlutar Oracle viðskiptalausna. Notendum nægir því aðgangur að vafra til að slá inn eða lesa upplýsingar úr kerfinu. 

Helstu kostir

  • Staðfært til að henta íslenskum aðstæðum
  • Samnýtir starfsmannaupplýsingar með mannauðskerfi
  • Tenging við þjóðskrá og Reiknistofu bankanna og sjálfgefin gildi minnka þörf fyrir innslátt
  • Villuleit við innslátt eykur gæði gagna
  • Tengist sérsmíðuðum kerfum Advania eins og VinnuStund og Ráðningakerfi
Hægt er á auðveldan hátt að reikna laun fyrir einstaka starfsmenn, til dæmis ef þörf er á að skoða niðurstöðu fyrir nýráðinn starfsmann. Eftir slíka launakeyrslu er hægt að skoða rafrænan launaseðil með öllum niðurstöðum keyrslunnar.

Launakeyrslu fyrir alla starfsmenn má framkvæma eins oft og þurfa þykir fram að útborgunardagsetningu, sé þörf á leiðréttingum. Launaseðlar geta verið sendir í heimabanka, birtir í sjálfsafgreiðslu starfsmanna og yfirmanna eða prentaðir og sendir í pósti. Greiðsla launa er með rafrænu innleggi í banka eða ávísun sé þess óskað.

Yfirmenn geta skoðað launaseðla sinna undirmanna. Yfirmenn geta einnig séð um launabreytingar sem er valkvæmt hvort er samkvæmt samþykktarferli eða ekki.
 

Hægt er að fletta upp niðurstöðum launakeyrslu fyrir alla starfsmenn í einni skjámynd og skoða þar rafræna launaseðla.

Kerfinu fylgja ýmsir staðlaðir listar, skýrslur og hefðbundnar fyrirspurnir, en einnig er hægt að sérsmíða ýmsar skýrslur eftir þörfum viðskiptavinarins. Eins má tengja launakerfið við greiningarkerfi sem gerir endanotendum kleift að taka út ýmsar lifandi skýrslur á auðveldan hátt.
 

Mikið er um viðbótarskráningarsvæði sem tengjast ýmist starfsmanni, starfi eða launategundum. Upplýsingar sem þar eru skráðar er síðan hægt að nota við ýmsa flokkun og skýrslugerð.

Íslenskri staðfæringu af kerfinu fylgir það úttak sem nauðsynlegt er til að uppfylla kröfur aðila eins og Ríkisskattstjóra og Hagstofunnar. Ef um aðrar sérþarfir er að ræða notar Oracle kerfið opna staðla og skilgreind viðmót inn í kerfið til innlestrar á upplýsingum. 
 
 
Frekari upplýsingar, ítarefni og greinar um mannauðskerfi Oracle (Oracle Human Recource System) og einingar þess er að finna á vefsvæði Oracle, www.oracle.com.