
Rafræn viðskipti
Skeytamiðlun Advania er þjónusta fyrir rafræn viðskipti í atvinnulífinu. Þjónustan er miðlæg og gerir mögulega rafræna dreifingu pantana og reikninga milli aðila sem tengjast miðluninni. Flest fyrirtæki og stofnanir geta með einföldum hætti tekið upp pappírslaus viðskipti. Tilkostnaður við pappírslaus viðskipti er lítill og hagræðing mikil.
Helstu kostir
- Flýtir fyrir skráningu gagna og fækkar skráningarvillum
- Örugg rafræn viðskipti og hraðari vinnsla á pöntunum
- Einfaldar ferla og bætir upplýsingagjöf
Ummæli viðskiptavinarVið höfum starfað náið með Advania við upptöku rafrænna reikninga og það samstarf hefur verið mjög gott og gefandi. Árangur af rafrænum reikningum er ótvíræður og þjónusta Advania hefur verið til fyrirmyndar.
- Jónas Skúlason, deildarstjóri Borgarbókhalds Reykjavíkurborgar
Reynslusaga frá viðskiptavini
Fyrirtæki ákvað að byrja í rafrænum viðskiptum fyrri 4 mánuðum
Fyrirtækið sendir í dag um 300 rafræna reikninga á mánuði
- Áður kostaði hver reikningur um 200 krónur
- Núna kostar hver reikningur um 29 krónur
| 300 x 200 kr. | 60.000 kr. |
| 300 x 29 kr. | 8.700 kr. |
| Sparnaður | 51.300 kr. |
Pappíslaus viðskipti
Fyrirtæki og stofnanir geta með einföldum hætti tekið upp pappírslaus viðskipti. Advania býður upp á heildarlausnir fyrir fyrirtæki, jafnt stór sem smá.
Tilkostnaður við að taka upp pappírslaus viðskipti er lítill en hagræðingin mikil.

NES-viðskiptastaðallinn
Frá árinu 2005 hefur verið unnið að samnorrænum staðli fyrir rafræn viðskipti. Staðallinn kallast NES og á rætur að rekja í EDI-heiminn. NES staðallinn býður upp á ýmis form viðskipta, allt frá einföldum reikningum til flókinna innkaupaferla. Skeytamiðlun Advania styður að fullu flutning á NES-skeytum. Með því að stunda rafræn viðskipti í gegnum Skeytamiðlun Advania er búið að tryggja öryggi og auka hagræði við meðhöndlun gagna.
Aukaþjónusta í boði
Samhliða því að dreifa viðskiptagögnum með rafrænum hætti á öruggan máta býður Skeytamiðlun Advania upp á margskonar aukaþjónustu til handa sínum viðskiptavinum. Þessi aukaþjónusta er hugsuð sem valmöguleika fyrir fyrirtæki eða stofnanir til að geta hagrætt enn frekar.
- Prentun hjá Advania
- Innri birting
- Kröfupottur Reiknistofnun bankanna
- Birtingakerfi Bankanna
- Innheimta
Grunnskeyti, send og móttekin að 50kB
| Magn | *Afsláttur | Afsl. kr. | Nettó verð |
| 1-149 | 0% | 0 kr. | 30 kr. |
| 150 | 1,5% | 0,5 kr. | 29,6 kr. |
| 200 | 2% | 0,6 kr. | 29,4 kr. |
| 500 | 5% | 1,5 kr. | 28,5 kr. |
| 1000 | 10% | 3 kr. | 27 kr. |
| 1500 | 15% | 4,5 kr. | 25,5 kr. |
| 2000 | 20% | 6 kr. | 24 kr. |
| 3000 | 30% | 9 kr. | 21 kr. |
| 4000 | 40% | 12 kr. | 18 kr. |
| 5000+ | 50% | 15 kr. | 15 kr. |
Aukaþjónusta
| Aukagjald fyrir hver 50 kB umfram grunnskeyti |
15 kr. |
| Birting á sértæku stílsniði með einni uppsetningu | 50.000 kr. |
| Enduruppsetning á sértæku stílsniði | 12.000 kr. |
| Bankabirting í RB | 45 kr. |
| Uppsetning á bankabirtingu | 30.000 kr. |
| Prentun | Hafa samband |
