Hverjir geta nýtt sér Office 365?
Stór og smá fyrirtæki, félagasamtök, einyrkjar og ríkisstofnanir geta nýtt Office 365.
Getur fyrirtæki mitt fengið áskrift að einstökum forritum sem fylgja Office 365?
Já hægt er að gerast áskrifandi að einstökum hugbúnaði frá Microsoft eins og Office Professional Plus pakkanum, Lync Online, Sharepoint Online og Lync Online.
Office 365 áskriftarleiðir (PDF)
Hver er kostnaður við mismunandi áskriftarleiðir
Hvað er innifalið í Office Professional Plus pakkanum?
Office Professional Plus inniheldur eftirfarandi hugbúnað frá Microsoft: Access, Excel, InfoPath, OneNote, Outlook, PowerPoint, SharePoint Workspace og Word.
Hvaða kostnaður fylgir því að hýsa gögn erlendis?
Þessi kostnaður ræðst af því gagnamagni sem fyrirtækið nýtir á hverjum tíma ásamt fjölda notenda og stærð skjala sem unnið er með.
Hvaða kröfur eru gerðar til stýrikerfa og vafra
Get ég notað Office 365 á léni fyrirtækisins?
Já þetta er hægt. Sjálfgefið er að Microsoft úthluti léni til nýrra viðskiptavina á forminu NAFNFYRIRTÆKIS.ONMICROSOFT.COM en þessu má breyta yfir í lén fyrirtækisins Advania veitir alla aðstoð við að stilla upp tölvupósti og Sharepoint Online síðum upp á léni fyrirtækisins sé þess óskað
Hver er ábyrgðaraðili fyrir þjónustuna
Viðskiptavinir eru með hugbúnaðinn í Office 365 í áskrift hjá Microsoft sem ábyrgist virkni hans og aðgengi samkvæmt
skilmálum frá MicrosoftGetur Microsoft tryggt að gögn séu aðeins hýst á Evrópska Efnahagssvæðinu?
Skv. upplýsingum frá Microsoft þá er gögn íslenskra fyrirtækja hýst í gagnaveri á Írlandi. Ef eitthvað kemur upp á í því gagnaveri eru gögn flutt til Hollands. Ef Microsoft þarf að færa gögnin út fyrir Evrópska Efnahagssvæðinu þá er Microsoft með
svokallaða Safe Harbour stöðuGet ég sjálf(ur) sinnt notendaumsjón og stýringu á Office 365 hugbúnaði sem ég er með?
Já, Microsoft lætur viðskiptavinum sínum í té stjórnborð fyrir þetta. Sé þess óskað getur Advania séð um alla notendaumsjón og stýringar.
Hafðu samband við Advania til að fá nánari upplýsingar.
Er hægt að nota Office 365 með Mac tölvum
Hvernig virkar prufuáskrift að Office 365
Prufutíminn á Office 365 (e. Trial) stendur yfir í 30 daga. Eftir það þarf að ákveða hvort viðkomandi fyrirtæki vilji greiða fyrir áskrift. Meginreglan er sú að í prufuáskrift í Enterprise (E) áskriftarleiðum er hámarksfjöldi notenda 25. Í áskriftarleiðinni fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki (P) er hámarksfjöldi notenda 10.
Ég er þegar með nýjustu útgáfurnar af Office, Exchange, Sharepoint og hýsi þennan hugbúnað sjálfur eða hjá hýsingaraðila – á ég að samt að skoða Office 365?
Það fylgja margir kostir að nýta Office 365. Þú greiðir aðeins fyrir þann hugbúnað sem reksturinn þinn þarf og það er alltaf tryggt að þú ert með nýjustu útgáfu af þeim hugbúnaði sem er innifalinn í Office 365. Hafðu samband við okkur með því að senda okkur
póst
Fleiri spurningar og svör á vef Office 365
Hvers vegna er gjaldfært fyrir Office 365 í Evrum?
Þegar fyrirtæki fara í Office 365 áskrift er það Microsoft sem veitir þjónustuna og gjaldfærir fyrir áskriftina.
Hvaða þjónustu veitir Advania í tengslum við Office 365
Advania getur veitt fjölþætta þjónustu við þá sem hagnýta Office 365. Við veitum ráðgjöf við val á áskriftarleiðum, aðstoðum við innleiðingu og getum sinnt notendaaðstoð í gegnum þjónustuver okkar sem er opið allan sólarhringinn, alla daga ársins, allt árið um kring.
Hvaða þjónustuloforð hefur Microsoft fyrir Office 365?
Hvernig er öryggismálum háttað í Office 365?
Hvaða skilmálar gilda af hendi Advania vegna Office 365?
Hvaða innleiðingarvinnu þarf að fara í ef ég vil hagnýta Office 365
Umfang innleiðingingarvinnu vegna Office 365 veltur á því hvaða hugbúnaður er þegar í notkun og hvaða Office 365 hugbúnað á að innleiða. Skilgreina þarf aðgang notenda að hugbúnaði og gögnum. Síðan þarf að panta aðganga fyrir notendur, stofna þá inn, færa gögn yfir á tölvuskýið hjá Microsoft, setja upp hugbúnað á útstöðvar og sannreyna að allir hafi þann aðgang að hugbúnaði og gögnum sem þeir þurfa.
Hvaða áskriftarleiðir eru í boði?
Office 365 felur í sér nokkrar áskriftarleiðir. E3 áskriftarleiðin hentar kröfuhörðum notendum en hún innifelur Office Professional Plus pakkann, Sharepoint Online (10GB per fyrirtæki + 500MB per notanda), Lync Online og Exchange Online (25GB pósthólf fyrir hvern notanda). Hjá minni fyrirtækjum og einyrkjum (1-25 notendur) þar sem vefaðgangur að Word, Excel og Powerpoint og tölvupósti dugar má skoða P1 áskriftarleiðina. K1 og K2 áskriftarleiðirnar veita aðgang að vefpósti (Exchange Online), 500 MB tölvupósthólfi, Sharepoint Online og eftir atvikum Office Web Apps.