S5 Áhættumat
S5 Áhættumat er veflausn og því aðgengilegt öllum skilgreindum notendum sem aðgang hafa að veraldarvefnum. Viðmót kerfisins er notendavænt og auðvelt er að læra á það. Kerfið leiðir notandann áfram á öruggan hátt í gegnum áhættumatsferlið og innleiðingu fyrirbyggjandi ráðstafana vegna aðsteðjandi ógna.
S5 Áhættumat er þróað af sérfræðingum Skýrr með áralanga reynslu í stjórnun upplýsingaöryggis. Kerfið tekur mið af staðlinum ÍST ISO/IEC 27001, sem er alþjóðastaðall og veitir leiðbeiningar við að koma upp og innleiða stjórnkerfi upplýsingaöryggis.
Í S5 Áhættumati er meðal annars hægt að:
- Skrá og flokka eignir eftir eðli, virði (mikilvægi) og aðgengi
- Greina áhættuþætti (ógnir), sem að eignum stafa og meta á kerfisbundinn og hlutlægan hátt alvarleika þeirra
- Skilgreina fyrirbyggjandi ráðstafanir vegna ógna (s.s. úrbótaverkefni) með það að markmiði að lágmarka öryggisáhættu
- Stýra innleiðingu ráðstafana og stjórnkerfi upplýsingaöryggis
- Framkvæma áhættumat fyrir starfsemina í heild eða ákveðna þætti hennar
- Endurskoða áhættumat eftir þörfum meðal annars með því að byggja á niðurstöðum fyrra áhættumats. Eignaskrá og ógnir eru þá endurmetnar, nýjar eignir og ógnir eru skilgreindar og eldri felldar út eftir því sem við á
- Útbúa nothæfisyfirlýsingu fyrir vottun þar sem fram kemur hvaða stýringar staðalsins ÍST ISO/IEC 27001 hafa verið innleiddar og hverjar ekki ásamt nauðsynlegum rökstuðningi. Yfirlýsingin er auk þess greinargóður vitnisburður um ástand upplýsingaröryggis hjá fyrirtækinu
- Helstu kostir S5 Áhættumats eru:
- Betra og skilvirkara skipulag við áhættumat
- Auðveldari innleiðing stjórnkerfis upplýsingaöryggis
- Markvissari greining áhættuþátta og auðveldari stjórnun þeirra
- Kerfið er einfalt í uppsetningu og notkun
- Kerfið er sveigjanlegt og auðvelt í viðhaldi
- Kerfið býður upp á margvíslegar sýnir á gögn og veitir góða yfirsýn yfir ástand upplýsingaöryggis hverju sinni
- Kerfið leggur til margvíslegar og gagnlegar stoðupplýsingar, svo sem fyrirfram skilgreinda áhættuþætti, sem algengt er að ógni öryggi mikilvægra eigna, gagnráðstafanir sem staðallinn ÍST ISO/IEC 27001 leggur til vegna ógna o.fl.
- Kerfið er til bæði á íslensku og ensku
Upplýsingaöryggi
Stjórnun upplýsingaöryggis er nauðsynlegur þáttur í að tryggja samfeldni í rekstri skipulagsheilda og órjúfanlegur hluti af rekstraröryggi þeirra. Tilgangur þess er meðal annars að koma í veg fyrir atvik sem truflað geta reksturinn eða lágmarka áhrif af slíkum atvikum.
Áhættumat
Áhættumat er meginþáttur í að koma á og viðhalda stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Við áhættumat er ákvarðað hvaða upplýsingaeignir þarf að vernda, greindar ógnir sem að þeim steðja og ákveðnar aðgerðir til vernda eignirnar og þannig draga úr líkum á áföllum og tjóni.





