IP allsstaðar PRÆM
IP PRÆM símalausn
PRÆM símaþjónusta felur í sér aðgang að símkerfi sem vistað er í kerfissal Advania og rekið af sérfræðingum í símalausnum. Tæknimenn sjá um að setja upp aðganginn eins og hentar hverjum og einum með þeim þjónustum sem óskað er eftir fyrir eins marga starfsmenn og nauðsyn krefur.
Helstu kostir og áherslur:
- Símkerfið er hluti af netkerfi fyrirtækisins.
- Sérstakar símalínur inn til fyrirtækis leggjast af.
- Fastur og þekktur kostnaður fyrir hvern virkan notanda.
- Símkerfið er hýst og nýtur hagræðis af öðrum miðlægum rekstri.
- Fjárfesting fyrirtækis í fjarskiptasamböndum nýtist til fulls.
- Fjárfesting fyrirtækis í netbúnaði nýtist til fulls.
- Annmarkar staðbundins símkerfis hverfa.
- Kerfið er keyrt með stöðvar bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Eina tengingin við umheiminn sem PRÆM þarfnast er hrein IP nettenging og fer stærð hennar eftir fjölda notenda. Þessi nettenging er sú sama og starfsmenn nota fyrir Internet en eiginlegar símalínur eru óþarfar. Innanhússlagnir eru líka einfaldaðar þar sem PRÆM getur notað sömu lagnir og tölvur en það er möguleiki, ekki skilyrði.
Advania útvegar símtæki af öllum stærðum og gerðum til leigu. Hægt er að velja um einföld símtæki upp í fullkomin þjónustuborðs símtæki en auk þess er möguleiki á að tengja þráðlaus tæki auk faxtækja inn á kerfið.
Hægt er að nota GSM síma sem þráðlausa innanhússsíma óháð staðsetningu. Notuð er sérstök GSM gátt við símstöðina til að hringja landlínu úr GSM og er þannig hægt að velja ódýrasta kostinn þegar hringt er úr GSM.
Símkerfið er hýst og rekið í umhverfi sem er vaktað og þjónustað 24/7/365. Tvö símkerfi eru keyrð samhliða til að tryggja ávallt 99% uppitíma en slík högun er mjög dýr fyrir eitt fyrirtæki.
Þjónustuver gefur alltaf rétta mynd af biðtíma og svörun fyrirtækja. Hægt er að setja ákveðinn hóp starfsmanna í þjónustuver og taka síðan út ýtarlegar skýrslur sem sýna t.a.m. svörun og bið eftir tíma og dagsetningu.