IP símalausn

Símalausn Advania hýst miðlæg lausn

Með Símalausn Advania sameinum við háhraða Internet tengingu og síma sem sparar símalínugjöld inn í fyrirtæki. Símkerfið einfaldar samskipti milli fyrirtækisins og viðskiptavina, er sveigjanlegt í uppsetningu og auðvelt að breyta eftir uppsetningu. Ekki þarf að sjá um tæknilegan rekstur né halda uppi mannskap til að reka þann búnað sem til þarf. Notendur skrá sig inn í gegnum notendavefviðmót og sjá sjálfir um að stjórna símkerfinu.

Helstu kostir:

  • Hægt er að hringja beint af flestum vefsíðum.
  • Ekki þarf að kaupa símstöð. Leigður er aðgangur að símalausn Advania.
  • Allar uppfærslur á símalausninni eru innifaldar í mánaðarverði.
  • Úrelding á símstöðvum er ekki lengur inn í myndinni.
  • Símalausnin stækkar eða minnkar með fyrirtækinu.
  • Tæknimaður fyrirtækisins stjórnar aðgerðum.
  • Ekki þarf að kalla til sérfræðing til að gera breytingar.
  • Notandinn getur stjórnað símtölum í sitt símanúmer með einu músarklikki með tækjastiku í Outlook og Explorer.

Símalausn Advania hentar mjög vel fyrirtækjum með dreifða starfssemi

Með því að leigja aðgang að Símalausn Advania er hægt að tengja öll útibúin við eina símstöð. Tæknimaður fyrirtækisins stjórnar símkerfinu við skrifborðið sitt með vefviðmóti og getur því sett upp eða lokað símum fyrirtækisins hvar sem er á landinu.
 

Hægt er að fá skýrslur úr símkerfinu sendar á netfang stjórnunarlegs tengiliðs

Er þá ákveðið fyrirfram hvað viðkomandi stjórnandi vill sjá, t.d. hvað höfum við misst af mörgum símtölum yfir daginn, yfir vikuna eða mánuðinn svo eitthvað sé nefnt. Hægt er að sjá símtöl brotin niður á einstakt númer í fyrirtækinu. Hægt er að fá skýrslu senda daglega, vikulega eða mánaðarlega.
 
Það eru engar vörur í körfunni