Prenta síðu Senda síðu  

Vöruflokkar

Sérfræðingar í öryggismálum

Þekking og reynsla tryggir öryggi þitt
Advania aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að bæta öryggi sitt. Ráðgjöf okkar byggir á áratugalangri reynslu og við vinnum eftir þekktum stöðlum eins og PCI og ISO 27001. Fáðu ráðgjafa Advania til að heimsækja fyrirtæki þitt til að fræða starfsfólk um upplýsingaöryggi.

Rafræn skilríki

Við erum leiðandi í öryggismálum
Advania selur skilríki frá virtum útgefendum eins og VeriSign, GlobalSign, Thawte og Geotrust. Þau eru notuð fyrir örugga vefi (SSL vefi), tölvupóst og VPN aðang að staðarneti. Advania aðstoðar við uppsetningu Microsoft CA fyrirtækjalausna og veitir alla almenna ráðgjöf.

Bólusettu tölvukerfið þitt

Verðu þig fyrir spilliforritum og veirum
Advania býður fyrirtæki þínu upp á öryggislausnir frá fjölmörgum leiðandi framleiðendum eins og til dæmis Trend Micro og Microsoft. Sérfræðingar okkar eru reiðubúnir til að taka út öryggismál þín og veita þér haldgóða ráðgjöf varðandi uppsetningar og hagnýtingu á öryggislausnum.

Öruggur tölvupóstur

Hver les tölvupóstinn þinn?
Advania býður öryggislausnir fyrir helstu tölvupóstkerfi svo sem Outlook og Lotus Notes. Þær gera notendum mögulegt að senda viðkvæm gögn með öruggum hætti. Advania er einnig með lausnir sem sanna uppruna tölvupósts.

Gagnavernd

Tryggðu öryggi skjala
Advania getur sett upp lausnir sem tryggja öryggi skjala á hörðum diskum, í tölvupósti, í MS Sharepoint o.s.frv. Notendur geta dulkóðað og stillt aðgengi einstakra skráa eða mappa niður á notanda eða hópa bæði innan og utan fyrirtækisins.

Skráningarkerfi fyrir gestamóttöku

Visita
Visita er einföld og þægileg lausn fyrir gestamóttöku í fyrirtækjum og stofnunum. Kerfið er fljótlegt í uppsetningu og hagkvæmt í rekstri. Það eykur öryggi enda fær hver gestur spjald með sínu nafni.

Rafrænar undirritanir

Framtíðin er hér
Advania býður öruggar lausnir fyrir rafrænar undirritanir skjala. Þannig geta handhafar debetkorta með rafrænum skilríkjum undirritað skjöl og samninga hvar og hvenær sem er.

Örugg starfsmannakort

Stórbætt öryggi
Örugg starfsmannakort með örgjörva auka öryggi og sameina aðgangsstýringar að húsnæði og tölvukerfum. Eitt og sama kortið má nota til að auðkenna starfmenn, veita aðgang að húsnæði, stýra aðgangi að staðarneti, lokuðum vefsvæðum, VPN, við örugga prentun og með Matráði til að greiða fyrir mat.

Dulkóðun

Örugg miðlun gagna
Advania hefur lausnir fyrir dulkóðun og afkóðun gagna í gagnagrunnum (t.d. kortanúmer og kennitölur). Í boði eru lausnir til að dulkóða gögn á hörðum diskum, til að beita rafrænum skilríkjum (HSM) ásamt dulkóðun harðra diska og minniskubba, lyklastjórnun og hópvinnulausnir.
Það eru engar vörur í körfunni