Microsoft Dynamics NAV leiga

Leiga fyrir smærri fyrirtæki

Advania býður mjög einfalda og þægilega upplýsingatækni fyrir smærri fyrirtæki. Í boði er fullkomið Microsoft Dynamics NAV til leigu. Enginn uppsetningarkostnaður, fyrstu 30 dagarnir fríir og engar færslutakmarkanir.  Kerfið er hýst miðlægt í öruggu umhverfi hjá Advania, stærsta hýsingaraðila Microsoft Dynamics hugbúnaðar á Íslandi.

Hvað er í pakkanum?

Um er að ræða leigu, rekstur og vörslu á stöðluðum Microsoft Dynamics NAV hugbúnaði. Hugbúnaðurinn kemur með uppsettu einu fyrirtæki með stöðluðum bókhaldslykli og grunnuppsetningu.
  • Fjárhagsbókhald
  • Eignakerfi
  • Viðskiptamanna- og sölubókhald
  • Lánardrottna- og innkaupakerfi
  • Birgðir
  • Forðabókhald – grunnur
  • CRM tengslastjórnun – grunnur
  • Starfsmannahald – grunnur
  • Ótakmarkaður fjöldi fyrirtækja (með sömu eignaraðild)

 

Eftirfarandi sérkerfi Advania eru í boði til viðbótar við stöðluðum hugbúnaði Microsoft Dynamics NAV.  Um er að ræða fast mánaðargjald og fría uppsetningu

  • Laun
  • Tímaskráning
  • Launamiðar verktaka
  • Innheimta
  • Uppflettiveita (gengi, vísitölur o.fl.)
  • Sjálfvirkar bankaafstemmingar
  • POS verslunarkassi
  • POS tenging við NAV

Helstu kostir leigunnar:

  • Kostnaður þekktur
  • Enginn uppsetningarkostnaður
  • Auðvelt að skala til notendafjölda
  • Fyrsti mánuðurinn frír í notkun
  • Engin uppfærslugjöld
  • Þjónustuvefur með leiðbeiningum og kennsluefni
Það eru engar vörur í körfunni