ÓPUSallt
Námskeið á næstunni
Ópusallt - fjárhagur
Farið er yfir uppsetningu á bókhaldslyklum og kerfisföstum fjárhagsbókhalds. Einnig er skoðuð uppsetning á gjaldmiðlum og hvernig gengisskráing er sótt. Farið verður yfir uppsetningu á mótum/tegundum sem stýra bókun í kerfinu og tengingar þess við fjárhag. Farið yfir uppsetningu á dagbókum og runum. Farið í mismunandi bókunaraðferðir (vsk og gjaldmiðlar, textar o.þ.h.) og aðgerðir í færslubók. Farið yfir uppsetningu virðisaukaskatts og uppgjör þar sem við skoðum vsk-skýrsluna og vsk-listann. Farið yfir Efnahags- og Rekstrarreikning, ásamt Aðalbók fjárhags og öðrum skýrslum sem tengjast fjárhag. Farið yfir uppsetningu á viðskiptamönnum og lánardrottnum og helstu skýrslur þeim tengdum. Einnig hvernig hægt er að sérsníða útlit lista til þess að ná út upplýsingum. Farið yfir og kynntar afstemmingar og útjafnanir, gengismunaútreikningur og vinnslur í fjárhag, viðskiptamönnum og lánardrottnum. Kynnt lauslega afstemming bankareikninga og beintenging við RSK vegna virðisaukauppgjörs, auk notkun á Víddum.
Lesa nánar / Skrá þátttökuÓpusallt - Innkaup
Farið er yfir birgðakerfi og uppsetningu á vörutegundum. Einnig er farið yfir innkaupakerfi, hvernig virkni pantanakerfis er og kostina við að nýta sér nýtt innkaupaferli í ÓPUSallt.
Farið yfir tengingu við tollkerfi og verðútreikning, nýja virkni sem kemur í útgáfu 2012. Þetta námskeið hentar vel fyrir þá sem vinna við Innkaup, tollafgreiðslu eða lagerstörf.