Prenta síðu Senda síðu  

Atburður

11.05.2012

Föstudagsmessa með hershöfðingja (#oryggi)

Advania heldur spennandi föstudagsmessu 11. maí, þar sem fjallað verður um stafrænt öryggi í atvinnulífinu, einkum hvað snertir mikilvægi öryggisstefnu og tengdra ráðstafana gagnvart stafrænum árásum og skipulagðri glæpastarfsemi á netinu. Einnig verður skoðaður möguleikinn á fjárhagslegum ávinningi af notkun upplýsingaöryggis.

Aðalfyrirlesari dagsins verður enginn annar en Jonathan Shaw hershöfðingi, sem fjallar um stafrænar árásir. Shaw stýrir aðgerðum breska varnarmálaráðuneytisins gegn netvá og hefur verið nefndur „Cyber-Czar“ landsins. Einnig stíga á stokk Hörður Helgi Helgason lögmaður sem mun velta fyrir sér virðisaukandi notkun upplýsingaöryggis og Sigurður Másson öryggisgúrú sem ræðir uppsetningu viðbragðskerfa.

Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Advania að Ármúla 2 í Reykjavík. Húsið opnar kl. 8:00, dagskrá hefst stundvíslega 8:30 og fundi lýkur um kl. 10:00. Þess má geta að í tilefni dagsins munum við bjóða upp á ljúffengan morgunverð með yfirskriftinni „English Breakfast“...

ADVANIA NUDDAR STÍRURNAR ÚR AUGUNUM

Gestur G. Gestsson forstjóri býður góðan dag


UPPSETNING VIÐBRAGÐSKERFA

Sigurður Másson deildarstjóri
Einnig stígur á stokk Sigurður Másson, deildarstjóri öryggislausna Advania, sem hefur um langt árabil unnið að stefnumótun upplýsingaöryggis og öryggis í rafrænum samskiptum og viðskiptum.
Um hvað fjallar fyrirlesturinn? Sigurður mun fjalla um stjórnun öryggisupplýsinga og viðbragða, ásamt því að ræða hvernig best er staðið að uppsetning viðbragðskerfa til að takast á við aðsteðjandi ógnir.

VIRÐISAUKANDI NOTKUN UPPLÝSINGAÖRYGGI

Hörður Helgi Helgason lögmaður
Aðrir fyrirlesarar verða meðal annars Hörður Helgi Helgason, sem er lögmaður er veitir stofnunum og fyrirtækjum sérhæfða þjónustu á sviði upplýsingatækni, svo sem um persónuvernd, upplýsingaöryggi, rafræn viðskipti, hugverkarétt og hugbúnaðarsamninga. Hörður Helgi er fyrrverandi yfirlögfræðingur Persónuverndar, ráðgjafi hjá The Legal Farm í New Hampshire í Bandaríkjunum og er nú einn eigenda lögmannsstofunnar Landslög. 
Um hvað fjallar fyrirlesturinn? Fyrirtæki grípa jafnan til aðgerða til að tryggja upplýsingaöryggi í þeim tilgangi að tryggja leynd þeirra upplýsinga sem þau vinna með og til að mæta kröfum, einkum utanaðkomandi kröfum. Lítið fer jafnan fyrir að fyrirtæki leiti eftir að nýta upplýsingaöryggi til að markaðssetja starfsemi sína eða auka með öðrum hætti virði þeirrar þjónustu sem þau bjóða upp á. Í erindinu verður lýst nokkrum leiðum fyrir fyrirtæki til að nýta upplýsingaöryggi í virðisaukandi tilgangi.


STAFRÆNAR ÁRÁSIR Á ATVINNULÍFIÐ

Jonathan Shaw hershöfðingi

Jonathan Shaw nam stjórnmálafræði og heimspeki við Trinity-háskóla í Oxford. Hann leiddi hersveit fallhlífarhermanna í Falklandseyjastríðinu og starfaði síðar í breska hernum á Kýpur og á Norður-Írlandi. Seinna leiddi hann fjölþjóðahersveitir í Kosovó og Írak. Jonathan Shaw hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar og orður fyrir framgöngu sína í starfi. Undanfarin ár hefur Shaw leitt stefnumótun breskra stjórnvalda á sviði efnahernaðar, hryðjuverka, kjarnorkuvár, óhefðbundins hernaðar, tölvuhakks og stafrænna árása. Undanfarin misseri hefur Shaw raunar einbeitt sér einkum að því að leiða verkefni gegn stafrænum ógnum og netvá á vegum breska varnarmálaráðuneytisins og hefur stundum verið kallaður „Cyber Czar“.
Um hvað fjallar fyrirlesturinn? Stafrænar árásir færast nú í aukana í atvinnulífinu. Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir hafa orðið fyrir barðinu á slíkum árásum og tjónið snúist um fjármuni, álitshnekki og upplýsingatap. En hvað er til ráða og hvernig er hægt að verjast þessari ógn?  Shaw mun í fyrirlestri sínum fjalla um þróun mála í Bretlandi í þessum efnum, eins og þau snúa að atvinnulífinu og ræða hvernig fyrirtæki þurfa að bregðast við nýjum tímum og þeirra vá, sem tölvuglæpir og stafrænar árásir eru.

FUNDARSTJÓRI

Rakel Theodórsdóttir, markaðfulltrúi Advania.

TWITTER - BEIN ÚTSENDING

Fylgstu með umræðum á fundinum á Twitter gegnum #oryggi eða komdu á ráðstefnuna og tvítaðu þar eins og vindurinn.

2CREATEFFECTS

Shaw er staddur hér á landi vegna fundahalda með Félagi forstöðumanna ríkisstofnana í samvinnu við fjármálaráðuneytið og Póst- og fjarskiptastofnun, en sú heimsókn er skipulögð af Chris Jagger hjá fyrirtækinu 2CreatEffects.

 

Það eru engar vörur í körfunni