Atburður

22.06.2012

Föstudagsmessa um gagnlegar nýsköpunarlausnir (#sprotar)

Hér eru glærur frá síðstu föstudagsmessu Advania á vorönn 2012. Að þessu sinni breyttum við dálítið til, stigum til hliðar (svona að mestu) og eftirlétum nokkrum flottum sprotafyrirtækjum sviðsljósið. 

GAGNLEGAR LAUSNIR

Þemað var „gagnlegar UT-lausnir fyrir atvinnulífið“. Við fengum til okkar kolmagnaða snillinga frá sex sprotafyrirtækjum, sem sögðu okkur frá leitarþjónustu, gagnavinnslu, upplýsingaveitum, IP-óháðum vef og menntalausnum, ásamt því sem við laumuðum inn smávegis spjalli um appþróun hjá Advania.

Smelltu á heitin á fyrirlestrunum hérna fyrir neðan til þess að skoða glærurnar.


GLÆRUR

Advania býður góðan dag!
Stefán Hrafn Hagalín, forstöðumaður samskiptasviðs


Advania: appþróun fyrir atvinnulífið
Baldur Már Helgason & Jökull Jóhannsson, appþróunarhópur veflausna Advania


DataMarket: Að finna og skilja gögn 
Agnar J. Ágústsson, hagfræðingur


Gogn.in: Gögn og gaman; gagnavinnsla með stóru G-i
Páll Hilmarsson, gagnanörd


Kelda: upplýsinga- og viðskiptavefur
Friðrik Guðjónsson, framkvæmdastjóri

NordicPhotos: Skipulegðu myndasafnið með PixPuffin
Arnaldur Gauti Johnson, framkvæmdastjóri


PageKite: vefur óháður IP-tölum
Bjarni Rúnar Einarsson, netgúrú


Skema: menntun í takti við tækniþróun
Rakel Sölvadóttir, framkvæmdastjóri


Fundarstjóri
Bríet Pálsdóttir, verkefnastjóri hjá veflausnum Advania