07.09.2012
Haustráðstefna Advania 2012
.jpg?proc=newsImageBigSubpage)
Haustráðstefna Advania 2012
LYKILRÆÐUR: NEWSWEEK, LSH & FJARÐAÁL
- Björn Zoëga, forstjóra Landspítala-Háskólasjúkrahúss, segir frá nýja spítalanum í Vatnsmýrinni; þessu tækniundri sem verður að mörgu leyti hjarta þekkingariðnaðar í landinu.
- Janne Sigurðsson, forstjóri Fjarðaáls, greinir frá því hvernig álverið á Reyðarfirði beitir upplýsingatækni á markvissan hátt til að skapa þekkingarver í fremstu röð.
- Dan Lyons, tækniritstjóri Newsweek, fjallar um byltingu snjallsíma og samfélagsmiðla og áhrif hennar á atvinnulífið.
DAGSKRÁ: 4 ÞEMALÍNUR
Dagskrá Haustráðstefnunnar mun standa yfir frá morgni til kvölds. Þemalínur ráðstefnunnar að þessu sinni eru:- Sparnaður (hagkvæmar lausnir fyrir stjórnendur)
- Hagnýting (nýjungar í verslun og þjónustu)
- Fróðleikur (aðferðafræði og verkefnastjórnun við allra hæfi)
- Virkni (bland í poka fyrir kerfisstjóra og forritara)
RÁÐSTEFNA OG LANDSLEIKUR
Fyrsti landsleikur íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í yfirvofandi undankeppni HM fer fram þetta sama kvöld niðri í Laugardal (skammt frá Hilton), kl. 18:45. Af því tilefni hefur Advania ákveðið að bjóða öllum ráðstefnugestum á leik Íslands og Noregs, strax eftir hefðbundinn hápunkt ráðstefnunnar: sjálft lokahófið.