Frétt
13.01.2012
Icelandair Group semur við Advania

Við undirritun All-in-heildarlausnasamnings Icelandair Group við Skýrr og Microsoft. Í fremri röð frá vinstri til hægri eru Halldór Jörgensson Microsoft og Gestur Gestsson Skýrr, ásamt þeim Björgólfi Jóhannssyni og Hlyni Elíssyni Icelandair. Fyrir aftan standa Jóhann Áki Björnsson Skýrr og Elísabet Halldórsdóttir Icelandair.
"Þetta er umtalsverð breyting á hugbúnaðarhögun hjá Icelandair Group, þar sem starfsfólk hefur notað Lotus Notes fyrir ofangreind verkefni allt frá árinu 1995. Nú verða stakkaskipti á vinnuumhverfi starfsfólks á næstu mánuðum þegar að við færum okkur yfir í Microsoft-lausnamengið. Við höfum miklar væntingar til jákvæðra áhrifa þeirrar þróunar," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.
"Icelandair Group hefur lengi verið í fararbroddi þjónustufyrirtækja, sem nýta upplýsingatækni til hins ítrasta við að veita jafnt viðskiptavinum sem starfsfólki hraða og góða þjónustu. Þessi metnaðarfulli samstarfsaðili okkar er kröfuharður viðskiptavinur og það er tilhlökkunarefni að uppfylla þarfir hans. Microsoft-heildarlausnin sem um ræðir hefur yfirskriftina „All-in“ og mér finnst sú yfirskrift ríma vel við þjónustustefnu okkar hjá Skýrr," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr.
"Microsoft er hreykið af þessari innleiðingu, enda höfum við tekið virkan þátt í samstarfinu og erum sannfærð um að það verði Icelandair Group til góðs. Þessi heildarlausn frá Microsoft inniheldur flestar lausnir og nýjungar frá Microsoft, sem fyrirtækjum standa til boða í dag, ásamt því að bjóða upp á viðbótarfríðindi og -lausnir. Þannig að þetta er mjög umfangsmikil innleiðing," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi.
Lausnirnar sem verða innleiddar hjá Icelandair Group eru nánar tiltekið Microsoft Office, Outlook, Exchange, SharePoint og Lync. Einnig mun starfsfólki Icelandair Group bjóðast Microsoft Office til heimilisafnota gegn vægu gjaldi.