Frétt
10.02.2012
10-11 semur við Advania
Gestur G. Gestsson hjá Advania og Árni Pétur Jónsson hjá Rekstrarfélagi Tíuellefu handsala umfangsmikinn samstarfssamning fyrirtækjanna.
"Advania og 10-11 hafa lengi verið í nánu samstarfi á sviði upplýsingatækni, meðal annars þegar kemur að hugbúnaðarlausnum frá Microsoft. Advania er sömuleiðis leiðandi aðili í hýsingu og rekstri kassakerfa og tengdra hugbúnaðarlausna. Það hentar okkur vel að útvista jaðarþáttum í starfseminni með þessum hætti og einbeita okkur að kjarnastarfsemi,” segir Árni Pétur Jónsson, forstjóri Rekstrarfélags Tíu ellefu ehf.
Rekstrarfélag Tíu ellefu ehf. á og rekur 21 verslun undir vörumerkinu 10-11 og eina verslun undir vörumerkinu Inspired by Iceland. Verslanir 10-11 eru staðsettar í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Reykjanesbæ og á Akureyri. Þær eru allar opnar allan sólahringinn, nema verslunin í Firði.
“Advania hefur um langt árabil fjárfest markvisst í aðstöðu, búnaði og þekkingu á sviði hýsingar og rekstrarþjónustu. Samningurinn við 10-11 er gott dæmi um að viðskiptavinir okkar kunna vel að meta þessa uppbyggingu. Það er einnig sérstakt ánægjuefni þegar þjónustufyrirtæki í fremstu röð koma til okkar í viðskipti,“ segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.