07.06.2012
Stækkun gagnaversins Advania Thor Data Center
.jpg?proc=newsImageBigSubpage)
Frá vinstri til hægri eru Eyjólfur Magnús Kristinsson framkvæmdastjóri rekstrarlausna og Advania Thor Data Center, Gestur G. Gestsson forstjóri Advania og Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
ÁNÆGJULEGT SAMSTARF
Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir uppbyggingu Advania á gagnaveri í landi bæjarins fara ákaflega vel saman við markmið sveitarfélagsins um fjölbreytta, atvinnuskapandi starfsemi. Hann fagnar samstarfinu við fyrirtækið. "Við erum hreykin af því að eitt stærsta upplýsingatæknifyrirtæki Norðurlanda telji að mikilvægum þætti í starfsemi þess sé best borgið í Hafnarfirði,“ segir Guðmundur Rúnar.GRÆNT GAGNAVER
“Advania er í dag 1.100 manna upplýsingatæknifyrirtæki með 20 skrifstofur í 4 löndum: Íslandi, Lettlandi, Noregi og Svíþjóð. Viðskiptavinir Advania eru um 10 þúsund talsins um víða veröld. Með því að nýta hið einstaka loftslag og náttúrulegu auðlindir hér á landi, er Advania Thor Data Center nokkuð álitlegur kostur fyrir alþjóðleg fyrirtæki, sem eru að leita að grænu gagnaveri með hagkvæma og áreiðanlega þjónustu,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, framkvæmdastjóri rekstrarlausna Advania, sem gagnaverið tilheyrir.VÖXTUR TIL FRAMTÍÐAR
“Með þessum vilyrðum frá Hafnarfjarðarbæ höfum við hjá Advania tryggt okkur vaxtarrými fyrir gagnaverið til langtíma við kjöraðstæður. Gagna- og orkuleiðir til og frá svæðinu í Kapelluhrauni verða eins og best verður á kosið þegar svæðið er að fullu komið í gagnið. Hraði uppbyggingarinnar til framtíðarinnar ræðst þó fyrst og fremst af viðtökum erlendra viðskiptavina, en við erum sannast sagna nokkuð bjartsýni á gott gengi í þeim efnum og nýtum þar öflugt útibúanet okkar á Norðurlöndum,” segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.