22.06.2012
LS Retail semur við Advania

Frá vinstri til hægri eru Gestur G. Gestsson Advania, Magnús Norðdahl LS Retail, Margrét Grétarsdóttir Advania, Garðar Gylfason Malmquist LS Retail og Þórir Björnsson LS Retail.
Áræðanleiki, hagkvæmni og hátt öryggisstig
„Flest helstu upplýsingatæknifyrirtæki Íslands á sviði rekstrarlausna áttu þess kost að bjóða í verkefnið. Við undirbúning samstarfsins var lögð þung áhersla á áreiðanleika, hagkvæmni og hátt öryggisstig lausna Advania, sem er samstarfsaðili alþjóðlegra öryggislausnafyrirtækja og vottað samkvæmt gæðastöðlunum ISO 9001 og 27001. Fagmennska samstarfsaðila er lykilatriði í okkar augum. Þetta er góð niðurstaða,“ segir Magnús Norðdahl, forstjóri LS Retail.
LS Retail er fyrirtæki sem gerir miklar kröfur
„LS Retail er framsækið og öflugt fyrirtæki. Lausnir fyrirtækisins eru í notkun hjá 2 þúsund fyrirtækjum, sem reka yfir 39 þúsund verslanir um víða veröld. Viðskiptavinir LS Retail eru meðal annars Adidas, Hard Rock Café, Pizza Hut og IKEA. Það segir sig sjálft að viðskiptavinur líkt og LS Retail gerir miklar kröfur um vönduð vinnubrögð til sinna birgja og samstarfsaðila. Við erum hreykin að hafa orðið fyrir valinu hjá þeim í harðri samkeppni við leiðandi aðila á íslenskum markaði,“ segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.