Hluthafaupplýsingar

Upplýsingar fyrir hluthafa og fjárfesta

Á þessari vefsíðu eru upplýsingar um Advania, sem snúa að hluthöfum og fjárfestum. Hérna er til dæmis að finna ársreikninga fyrirtækisins og helstu samþykktir. 

  

Samskiptasvið Advania sér meðal annars um

  • Öll almannatengsl
  • Fjárfestatengsl 
  • Viðburði
Hafðu samband ef þig vantar nánari upplýsingar um fyrirtækið.

Stjórn Advania skipa eftirtaldir aðilar

Aðalmenn
Anna Rún Ingvarsdóttir
Einar Páll Tamimi
Finnbogi Jónsson (stjórnarformaður)
Skúli Mogensen
Þór Hauksson

Varamenn
Erna Eiríksdóttir
Egill Tryggvason

Nánari upplýsingar um stjórn Advania
 

Eignarhald

Aðaleigandi Advania í dag er Framtakssjóður Íslands, sem er í eigu sextán lífeyrissjóða, en einnig eru liðlega 40 aðrir hluthafar í félaginu. Framtakssjóður Íslands er meðal annars kjölfestufjárfestir í Icelandair, Icelandic Group, Vodafone, Húsasmiðjunni og Plastprent.
Samanlögð velta fyrirtækja í eignasafni sjóðsins er um 300 milljarðar króna og hjá þeim starfa um átta þúsund manns, þar af um 3.600 á Íslandi.

Vefsvæði Framtakssjóðs Íslands
 

Stjórn Skýrr hf. boðar til aðalfundar miðvikudaginn 7. mars 2012

Stjórn Skýrr hf. boðar til aðalfundar félagsins, miðvikudaginn 7. mars 2012, kl. 11.00 að Suðurlandsbraut 18, 4. hæð, Reykjavík.

Á dagskrá fundarins eru eftirfarandi mál.

   1.  Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
   2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar.
   3. Ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
   4. Tillögur um breytingu á samþykktum félagsins:
        a.  Tillaga um breytingu á nafni félagsins í Advania hf.
        b.  Tillaga um breytingu á lögheimili félagsins í Sætún 10, Reykjavík.
        c.  Tillaga um breytingu á orðalagi hækkunarheimildar stjórnar í 2. mgr. 4. gr.
   5. Kosning stjórnar.
   6. Kosning endurskoðunarfélags.
   7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir næsta kjörtímabil.
   8. Tillaga um starfskjarastefnu næsta starfsárs.
   9. Önnur mál.

    Dagskrá fundarins og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Sætúni 10, Reykjavík, tveimur vikum fyrir hluthafafund.

    Fundargögn verða afhent hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað, frá kl. 10:00 á fundardegi, miðvikudaginn 7. mars 2012.

    Það eru engar vörur í körfunni