Viðskiptaskilmálar

Greiðsluskilmálar

Vörur og/eða þjónustu skal staðgreiða nema um annað hafi verið samið sérstaklega. Annar greiðslumáti en skv. meðfylgjandi greiðsluseðlum eða upplýsingum telst ófullnægjandi. Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast fjármálasviði Advania innan 30 daga frá útgáfudegi. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga.

Söluveð

Kaupandi vöru veitir Advania söluveð í hinu keypta, sbr. lög nr. 75/1997 um samningsveð. Veðrétturinn nær til allra þeirra hluta sem greindir eru í samningi/reikningi þessum. Veðið er til tryggingar kröfu Advania til alls endurgjaldsins sem greint er í samningi/reikningi þessum, ásamt vöxtum og kostnaði. Hluti þá er veðsettir eru má kaupandi hvorki selja né veðsetja án skriflegs samþykkis Advania. Ef vanskil verða á greiðslu þeirra krafna sem veðrétturinn nær til, getur Advania leitað fullnustu kröfu sinnar með því að krefjast nauðungarsölu, án undangengis dóms eða aðfarar.

Vöruskil

Vöru er einungis hægt að skila í vöruafgreiðslu Advania og ber kaupandi ábyrgð á að kreditreikningur og/eða móttökukvittun sé í samræmi við vöruskil. Vöru fæst aðeins skilað ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt: Varan er sannanlega gölluð. Allar handbækur, fylgihlutir, fylgigögn og umbúðir fylgi með í upprunalegu ástandi. Varan er algjörlega í upprunalegu ásigkomulagi án sjáanlegra skemmda. Innan við 30 dagar eru frá afhendingu vörunnar eða uppgötvunar galla, ef kaupandi vöru sýnir fram á að galli hafi uppgötvast síðar. Sérpantaðri vöru fæst ekki skilað nema varan sé verulega gölluð. Vöru á kaup-, fjármögnunar- eða rekstrarleigu fæst aðeins skilað í samræmi við ákvæði viðkomandi samnings.

Ábyrgðartími

Í viðskiptum Advania við aðila í atvinnurekstri er ábyrgðartími á sölu- eða leiguhlut 12 mánuðir. Sé um neytendakaup að ræða, gilda reglur neytendakaupalaga nr. 48/2003.um ábyrgðartíma að teknu tilliti til ofangreinds. Ef ábyrgðartími er annar en að framan greinir er þess sérstaklega getið á sölureikningi.

Umfang ábyrgðar á vélbúnaði

Sölureikningur telst ábyrgðarskírteini og skal framvísa honum til staðfestingar á ábyrgð. Advania ber ekki ábyrgð á afleiddu tjóni, sem kann að koma upp við notkun hins selda. Ábyrgð á fartölvurafhlöðum er 1 ár enda telst fartölvurafhlaða til rekstrarvöru ekki vélbúnaðar. Ef setja þarf inn stýrikerfi eftir viðgerð á tölvu, er það gert samkvæmt staðli Advania um grunnuppsetningu stýrikerfis, þ.e.a.s. án sértækra stillinga í uppsetningu. Advania áskilur sér rétt á að skipta út vélbúnaði sem bilar á ábyrgðartíma með eins eða sambærilegri vöru ef upp kemur að varahlut sé ekki hægt að fá frá framleiðanda vörunnar.

Sérstaklega um ábyrgð vegna staðlaðs hugbúnaðar
Staðlaður hugbúnaður er fjöldaframleiddur hugbúnaður án séraðlögunar. Advania ábyrgist að uppsetning á hugbúnaði virki eins og við má búast, í samræmi við kynningarefni hugbúnaðarins, fyrir þá útgáfu hugbúnaðarins sem í boði er á þeim tíma sem salan fer fram og með því stýrikerfi sem tilgreint er. Þegar hugbúnaður er ræstur í fyrsta skipti koma í flestum tilfellum upp samningsskilmálar framleiðanda hugbúnaðarins (EULA = End User License Agreement). Skilmálar teljast samþykktir við opnun og uppsetningu hugbúnaðarins í fyrsta sinn.

Mikilvægt er að notandi kynni sér samningstextann, en þar kemur meðal annars fram að:
  • Notandi er að kaupa sér afnotarétt (license) að hugbúnaðinum – ekki einkarétt.
  • Afnotarétturinn er í sumum tilfellum tímabundinn.
  • Strangar takmarkanir eru á afritun hugbúnaðarins.
  • Hugbúnaðinn skal ekki nota þar sem hætta er á  að hann geti valdið stórkostlegum skaða ef upp koma villur við notkun.

Óbeint og afleitt tjón sem hugsanlega stafar af notkun hugbúnaðarins eða vegna galla í hugbúnaðinum er ekki á ábyrgð framleiðanda hugbúnaðarins. Eftir opnun og uppsetningu hugbúnaðarins ber Advania ekki ábyrgð á honum eða tjóni sem hann getur valdið að öðru leiti en því að skipta honum út, virki hann ekki sem skildi í samræmi við kynningarefni hugbúnaðarins. Kaupi viðskiptavinur vélbúnað með fyrirfram uppsettum hugbúnaði gilda sömu reglur og að ofan  greinir um notkun og ábyrgð hugbúnaðarins frá því viðskiptavinur tekur vélbúnaðinn í notkun.

Ábyrgðartakmarkanir

Ábyrgð nær ekki til vinnu ef óskað er eftir viðgerð utan auglýsts afgreiðslutíma. Ábyrgð nær ekki til aukakostnaðar, t.d. aksturs og ferðatíma eða ef óskað er eftir viðgerð utan verkstæðis Advania. Ábyrgð nær ekki til kostnaðar sem hlýst af breytingum annarra en starfsmanna Advania á vélbúnaði eða uppsetningu stýrikerfis. Ábyrgð nær ekki til kostnaðar vegna endurheimtingar gagna eða enduruppsetningar notendahugbúnaðar. Eðlilegt slit á rekstrarvörum bætist ekki s.s. á rafhlöðum fartölva, enda ending þeirra í samræmi við það sem búast má við. Kaupandi á engar kröfur á hendur Advania vegna eiginleika eða skorts á eiginleikum hins keypta, enda hafði hann möguleika á að kynna sér eiginleika og takmarkanir hins keypta með lestri leiðbeininga eða lýsinga sem fylgja hinu keypta eða eru almennt aðgengilegar, t.d. á vefsíðu Advania eða framleiðanda hins keypta. Advania ber í engu tilviki ábyrgð á rekstrartapi kaupanda eða öðru afleiddu tjóni hans, þ.m.t. glötuðum ágóða eða ráðgerðum sparnaði, hvort sem tjónið er rakið til galla, skemmda eða eyðileggingar á hinu keypta eða til annarra ástæðna.

Ábyrgð á búnaði fellur niður ef:
Verksmiðjunúmer hefur verið fjarlægt. Búnaðurinn hefur verið tengdur við ranga spennu. Búnaðurinn hefur þolað ranga meðferð, misnotkun eða orðið fyrir hnjaski. Búnaðurinn er orðinn slitinn af notkun. Viðgerð eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð af öðrum en starfsmönnum Advania. Átt hefur verið við búnaðinn þannig að skemmd hefur hlotist af. Ábyrgðarinnsigli hefur verið rofið (á við um búnað sem hefur ábyrgðarinnsigli).

Meðferð ábendinga

Öllum starfsmönnum Advania er umhugað um að veita sem bestu þjónustu sem völ er á. Ef þú verður var við annað, eða getur bent okkur á eitthvað sem betur má fara, værum við afar þakklát að fá að vita af því. Hægt er að hafa samband í gegnum vefinn okkar með því að smella á "Hafa samband" hérna efst á síðunni. Öllum ábendingum er svarað.

Reglur sem gilda um netviðskipti

Rafrænn fjarsölusamningur er jafngildur skriflegum samningi en kaupandi hefur þó rétt til að falla frá kaupunum, án kostnaðar*, í allt að fjórtán daga frá móttöku vörunnar að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum: Vörunni sé skilað til fyrirtækisins. Innsigli á búnaði má ekki vera rofið. Búnaðurinn sé óskemmdur og í upprunalegum umbúðum. Að ekki sé um sérpöntun eða sérsniðna vöru að ræða. Advania ábyrgist að veittar persónuupplýsingar vera ekki afhentar öðrum né notaðar í öðrum tilgangi en viðkomandi viðskiptum.

*Við vöruskil er allur sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda og greiðist alfarið af honum. Þegar sendingarkostnaður er innifalinn í verði vöru á reikningi dregst sendingarkostnaður frá við endurgreiðslu skv. verðskrá Íslandspóst.