Nýjasta nýtt - 31. maí 2018

Blockchain-viðskipti með íslenskar landbúnaðarafurðir

Matís og Advania vilja efla viðskipti með landbúnaðarafurðir með lausn sem byggir á blockchain-tækni. Lausnin mun stuðla að rekjanleika svo neytendur verði upplýstir um uppruna og ferðalag vörunnar.

Matís og Advania vilja efla viðskipti með landbúnaðarafurðir með lausn sem byggir á blockchain-tækni. Lausnin mun stuðla að rekjanleika svo neytendur verði upplýstir um uppruna og ferðalag vörunnar.

Matís og Advania hafa gert með sér samkomulag um að nota hina byltingakenndu blockchain-tækni til að skapa vettvang fyrir viðskipti með íslenskar landbúnaðarafurðir. Blockchain eða bálkakeðja er tæknin sem viðskipti með Bitcoin-rafmynt byggir á. Einn helsti kostur hennar er að sýna nánast óvéfenglegan rekjanleika. Þess vegna hentar tæknin afar vel í viðskiptum þar sem uppruni og ferðalag vöru skiptir öllu, svo sem í viðskiptum með landbúnaðarafurðir.

Neytendur vilja vera upplýstir um uppruna matvæla og hafa lengi kallað eftir því að geta átt milliliðalaus viðskipti með landbúnaðarafurðir við bændur. Advania og Matís hyggjast því skapa nýjan vettvang sem byggir á blockchain-tækni og verður aðgengilegur almenningi í haust. Þá gefst fólki kostur á að fá yfirlit yfir framleiðslu lambakjöts á vefsíðunni matarlandslagid.is sem hefur að geyma ítarlegar upplýsingar um sérstöðu bænda og ræktun þeirra. Einnig verður horft til þess að nýta lausnina á nýjum matarmarkaði á Hofsósi.

Hugmyndin er að efla möguleika til nýsköpunar og sérhæfingar í landbúnaði. Vettvangurinn stuðlar auk þess að gagnsæi og heiðarleika í viðskiptum með matvæli. Samkvæmt samkomulaginu útvegar Advania kerfi sem byggir á blockchain-tækni og notað verður til að skrá á öruggan máta upplýsingar um bændaafurðir úr gagnagrunni Matís.

„Það er spennandi að nýta framúrstefnulega tækni til að stuðla að nýjum viðskiptaháttum í matvælaframleiðslu og auka valkosti bænda og neytenda. Sérfræðingar Advania ætla að smíða sína fyrstu lausn með blockchain fyrir þetta skemmtilega verkefni og við ætlum okkur að verða leiðandi afl í notkun á þessari tækni á Íslandi,“ segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania.

„Það er svo sannarlega ástæða til að leggja áherslu á nýköpun í framleiðslu lambakjöts. Það var því augljós kostur þegar Advania stakk uppá samvinnu á sviði blockchain, enda teljum við tæknina geta aukið verulega samtal milli bænda og neytenda og minnka líkur á matvælaglæpum. Verkefni af þessu tagi virðist stökkpallur fyrir íslenska matvælaframleiðendur,“ segir Sveinn Margeirsson forstjóri Matís.

Á síðari stigum verkefnisins stendur til að nýta blockchain-tæknina til að skrásetja beit sauðfjár með og koma í veg fyrir ofbeit á landi. Landgræðslan hefur þegar hafið þessa vinnu.

Mynd: Ægir Már Þórisson forstjóri Advania og Sveinn Margeirsson forstjóri Matís.

 


Fleiri fréttir

Fréttir
03.10.2026
Mannauðsdagurinn fór fram í Hörpu föstudaginn 2. október og Advania var einn af stærstu samstarfsaðilum ráðstefnunnar eins og síðustu ár. Mannauðsdagurinn er orðinn einn stærsti vettvangur stjórnunar og mannauðsmála hér á landi, þar sem mannauðsfólk, stjórnendur og ráðgjafar úr öllu atvinnulífinu koma saman.
Blogg
01.10.2026
Það var mikið um að vera á Xperience 2026, árlegri ráðstefnu Genesys í Las Vegas í byrjun september, og nýjungarnar voru bæði margar og spennandi. Skilaboðin voru skýr: tilraunaskeiði gervigreindar í þjónustu er lokið og nú snýst allt um að láta gervigreind, fólk og kerfi vinna saman í takt.
Fréttir
30.09.2026
Errol Norlum hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri gervigreindar (e. Chief AI Officer) hjá Advania samstæðunni og tekur sæti í framkvæmdastjórn samstæðunnar frá og með 1. október. Hlutverk hans er að samræma gervigreindarlausnir Advania þvert á öll markaðssvæði fyrirtækisins í Evrópu.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.