ADVANIA ALT

Einn vettvangur. Full stjórn

Við hjálpum stjórnendum og teymum að greina tækifærin, forgangsraða þeim og innleiða gervigreind á ábyrgan og öruggan hátt.

Áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir

Öryggi og regluverk

Aukin notkun gervigreindar setur meiri kröfur um gagnavernd, öryggi og reglufylgni.

Óstýrð gervigreindarnotkun

Starfsfólk finnur sínar eigin gervigreindarlausnir og fyrirtækið missir yfirsýn yfir hvernig þær eru notaðar.

Takmarkað val á tækni

Þú vilt nýta bestu lausnina fyrir hvert verkefni en ekki vera fastur við eitt gervigreindarmódel eða einn þjónustuaðila.

Ósýnilegur kostnaður

Þegar notkun gervigreindar dreifist um fyrirtækið verður erfiðara að sjá hvað er notað, af hverjum og hver heildarkostnaðurinn er.

Gervigreind hefur skapað fjölmörg ný tækifæri, en hefur á sama tíma opnað á spurningar um öryggi, gagnastjórnun og fullveldi. Advania ALT svarar þessum spurningum og gerir viðskiptavinum okkar kleift að skapa raunverulegt virði með nýrri tækni af krafti og öryggi
Þórður Ingi Guðmundsson
forstöðumaður gervigreindarseturs
Advania

Advania ALT er hannað til að gefa þér bæði frelsi og stjórn

Fullveldi gagna og traust

Fáðu fulla stjórn á gögnum, öryggi og því hvernig gervigreind er notuð.

Frelsi til að velja

Þú þarft ekki að velja eitt gervigreindarlíkan, veldu það sem hentar hverju verkefni.

Stýrð innleiðing

Gefðu fleiri teymum aðgang að gervigreind í sameiginlegu og stýrðu umhverfi.

Yfirsýn yfir notkun og kostnað

Fáðu innsýn í hvernig gervigreind er notuð og hvað hún kostar eftir teymi, verkefni og notkunartilvikum.

Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að festast í fortíðinni

Gervigreindarlandslagið breytist hratt þar sem ný líkön og lausnir á sviði gervigreindar koma stöðugt á markað. Advania ALT er hannað þannig að þú þurfir ekki að velja á milli þess að hafa stjórn og þess að geta nýtt þér nýjustu tæknina.

Traustur grunnur fyrir framtíðina

Advania ALT (AI Layer Technology)  lausnin er sú fyrsta sinnar tegundar í Evrópu og veitir aðgang að ólíkum gervigreindarlíkönum í gegnum eitt viðmót, á sama tíma og fyrirtæki halda fullri stjórn á gögnum, öryggi og notkun.

Þú einfaldlega bætir við eða skiptir um gervigreindarlíkön eftir því sem þarfir fyrirtækisins og tæknin þróast.

Gögnin þín. Þín stjórn. Þitt umhverfi.

Advania ALT er í boði á Íslandi með reikniafli staðsettu hér á landi og fara gögn viðskiptavina því ekki út fyrir íslenska lögsögu.  Lausnin er þróuð samkvæmt evrópskri reglugerð um gagnavernd og með stafrænt fullveldi að leiðarljósi.

Fyrir hverja er Advania ALT?

Fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja taka næsta skref í gervigreind

Advania ALT hentar sérstaklega þeim sem vilja færa gervigreind úr tilraunastarfsemi yfir í örugga, ábyrga og skalanlega notkun.

Þar sem unnið er með viðkvæm gögn

Þegar mikilvægt er að hafa stjórn á því hvar og hvernig gögn eru unnin.

Þegar reglufylgni og öryggi skipta máli

Þar sem skiptir máli að hafa fulla stjórn, ásamt því að tryggja öryggi og rekjanleika í notkun gervigreindar.

Þau sem vilja skala notkun sína

Þegar fleiri teymi innan fyrirtækisins eru farin að nýta sér gervigreind og notkunartilvikum farið að fjölga.

Þau sem vilja hafa tæknilegt frelsi

Þar sem áhersla er lögð á að geta valið mismunandi gervigreindarlíkön eftir því hvað hentar hverju sinni.

SPJÖLLUM SAMAN

Er þitt fyrirtæki tilbúið að þróast áfram af öryggi?

Kynntu þér hvernig Advania ALT getur hjálpað þínu fyrirtæki að nýta gervigreind á öruggan og ábyrgan hátt