Copilot námskeið

Við veitum starfsfólki og stjórnendum ráðgjöf og þjálfun í notkun Microsoft Copilot með áherslu á hagnýtingu í daglegum störfum. Markmiðið er að byggja upp þekkingu, efla færni og skapa góðar venjur svo starfsfólk geti nýtt gervigreind á markvissan og öruggan hátt.

Við þekkjum framtíðina

Hvaða námskeið hentar þínum vinnustað?

Grunnnámskeið

3 klst. námskeið þar sem farið er vel yfir grunninn, góðar venjur.

Skoða námskeið

Leiðtogakennsla

Heill dagur þar sem farið er yfir grunninn, öryggi og góðar venjur með leiðtogum.

Skoða námskeið

Stjórnendanámskeið

1 klst. fundur með stjórnendum þar sem veitt er markviss ráðgjöf.

Skoða námskeið
GRUNNNÁMSKEIÐ

Grunnnámskeið: Fyrstu skrefin með Copilot

3 klst. námskeið þar sem farið er vel yfir grunninn, góðar venjur, skipanir og hagnýt dæmi Copilot í Word, PowerPoint, Excel, Outlook og Teams. Engin þörf er á framhaldsnámskeiði, þetta inniheldur allt sem notendur þurfa til að fara hratt og örugglega af stað.

Hámarksfjöldi á námskeiðið er 30 manns.

Leiðtogakennsla

Leiðtogakennsla: Námskeið og vinnustofa

Heill dagur þar sem farið er yfir grunninn, öryggi og góðar venjur með leiðtogum innan fyrirtækisins ásamt hagnýtum dæmum, ábyrgð leiðtoga í innleiðingu og að lokum hópaverkefni til að stuðla að samstarfi og nýsköpun með gervigreind.

STJÓRNENDARÁÐGJÖF

Stjórnendaráðgjöf: Hámörkun á virði

1 klst. fundur þar sem veitt er markviss ráðgjöf um meginþætti innleiðingar, leiðtoga, menningu, gervigreindar-hæfni, stjórnsýslu og tæknistefnu.

MICROSOFT PARTNER OF THE YEAR

Advania er Microsoft samstarfsaðili ársins á Íslandi

Fyrirtækið er með þessu heiðrað ásamt fremstu samstarfsaðilum Microsoft á heimsvísu fyrir framúrskarandi nýsköpun og innleiðingu á lausnum fyrir viðskiptavini, byggðum á Microsoft tækni.

Microsoft Partner of the Year verðlaunin eru veitt til þeirra samstarfsaðila sem þóttu framúrskarandi á árinu en valið er úr þúsundum tilnefninga frá yfir hundrað löndum.

Sjá nánar á vef Microsoft
GERVIGREINDARTÓLIN

Lausnir sem styðja við vegferðina

Varða

Varða greinir SharePoint og OneDrive umhverfið þitt, metur raunverulega áhættu og setur niðurstöðurnar fram í skýru og mælanlegu formi.

Kynntu þér Vörðu

Copilot fyrir Microsoft 365

Gervigreind sem styður starfsfólk í daglegum verkefnum með sjálfvirkni og gagnadrifinni aðstoð. Samþætting við Microsoft 365 eykur framleiðni og einfaldar vinnuferla.

Kynntu þér Copilot

Microsoft Copilot Studio

Þróaðu þína eigin erindreka (e. agents) sem eru tengdir við gögn, ferla og kerfi fyrirtækisins. Sjálfvirknivæðing og betri þjónusta með lausnum sem laga sig að þínum þörfum.

Kynntu þér Copilot Studio

Fréttir af Microsoft lausnum

Microsoft hefur tilkynnt um umfangsmikið rekstraratvik í Microsoft 365-þjónustum sínum sem hefur áhrif á notendur víða um heim. Truflunin hefur meðal annars áhrif á Microsoft Outlook og Exchange Online, en einnig geta komið upp vandamál við notkun á öðrum þjónustum Microsoft, svo sem Teams, SharePoint og Microsoft 365 Copilot.
Í kvöld var tilkynnt að Microsoft hefur valið Advania sem samstarfsaðila ársins 2026 á Íslandi (e. Regional Partner of the Year).
Ný stilling sem Microsoft hefur nú sjálfkrafa virkjað hjá hjá öllum Copilot notendum innan Evrópu hefur áhrif á hvar gagnaúrvinnsla gervigreindartólsins fer fram. Ég ráðlegg fólki að slökkva á þessari stillingu.