Nýja Dell fjölskyldan

Við kynnum til leiks nýtt og einfaldað vöruframboð frá Dell. Það hefur aldrei verið auðveldara að finna réttu græjuna.

fyrir leik og skóla

Dell

Dell línan er sérstaklega hugsuð fyrir einstaklinga. Tölvurnar eru allar með nýjustu tegund gervigreindarörgjörva og þær eru fáanlegar bæði í Plus og Premium útgáfum. Engar áhyggjur - hin sívinsæla Dell XPS á heima hér. Núna heitir hún bara Dell Premium.

Sjá í vefverslun
fyrir vinnustaðinn

Dell Pro

Dell Pro línan er með nýtt og ferskt útlit og er hugsuð fyrir fólk á vinnumarkaði. Fartölvurnar eru meðal minnstu og léttustu fartölva í sínum flokki. Gerðar úr endingargóðum og traustum efnum og fara létt í gegnum vinnudaginn.

Dell Pro

Hagkvæmasta útgáfan af línunni. Þær eru fáanlegar í 14“ og 16“ skjástærðum í 16:10 hlutföllum. Þær eru með einstaklega góðri rafhlöðuendingu, og á sérstaklega góðum kjörum.

Dell Pro Plus

Ein sveigjanlegasta fartölvan fyrir fyrirtæki í heiminum og mætir þörfum allra tegunda starfsmanna. Hún er fáanleg í ýmsum gerðum og í nokkrum skjástærðum.

Dell Pro Premium

Copilot+ tölvulínan. Hún er létt og verulega flott, en öflug fartölva fyrir þá sem meta afköst og meðfærileika. Hún er fáanleg í 13 og 14 tommu skjástærðum og er grennsta og léttasta tölvan í Pro línunni.

fyrir hámarks afköst

Dell Pro Max

Er hönnuð fyrir krefjandi forrit. Þær líta eins út og Dell Pro tölvurnar, en með tækni sem býður upp á hæstu afköst í vinnutölvum. Ný 16“ útgáfa gerir flókna vinnu sérstaklega þægilega og með stuðningi við allt að NVIDIA RTX 2000 Ada skjákort, er krafturinn kominn sem þarf fyrir gervigreindargreiningu, myndvinnslu og skapandi vinnu.

Sjá í vefverslun
Viltu vita meira?

Skráðu þig á póstlista

Við sendum reglulega út áhugaverðar fréttir og fróðleik um það nýjasta í tækniheiminum og spennandi tilboð. Skráðu þig á listann til að frétta fyrst þegar græjur í nýju línunum lenda hjá Advania.

Nýir skjáir

Skjáirnir frá Dell hafa fyrir löngu sannað sig sem einir þeir bestu í bransanum. Nú fá þeir flestir einnig ný nöfn.

Dell

Hagkvæmir skjáir fyrir heimili jafnt sem vinnustaði.

Dell Pro

Línan sem býður upp á mesta úrval stærða og tengimöguleika. Sérstaklega hannaðir fyrir vinnustaðinn.

Dell UltraSharp

Besta mögulega tæknin í flottustu umbúðunum. Þeir sem vilja bara það besta, velja UltraSharp.

Aukahlutir

Nú hefur aldrei verið auðveldara að finna rétta aukahlutinn í aðalhlutverkið