Nýjasta nýtt - 25.2.2015 13:40:00

40 nýir þekkingarstarfsmenn ráðnir til Advania

Frá áramótum hafa ríflega 40 starfsmenn verið ráðnir til Advania en í upphafi árs auglýsti fyrirtækið eftir fjölda starfsmanna.


Hugbúnaðarverkfræðingar og tölvunarfræðingar

Frá áramótum hafa ríflega 40  starfsmenn verið ráðnir til Advania en í upphafi árs auglýsti fyrirtækið eftir fjölda starfsmanna. Hjá Advania starfar fólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn og eru nýliðarnir þar engin undantekning.  

Nýju starfsmennirnir eru flestir tölvunarfræðingar eða hugbúnaðarverkfræðingar að mennt. Flestir þeirra vinna við hugbúnaðarþróun en einnig er um að ræða önnur störf, eins og til dæmis verkefnastjórnun, ráðgjöf, viðskiptastjórnun, gæðamál og þjónustu við viðskiptavini. 

1.200 starfsumsóknir á árinu 2015

Á þessu ári hafa um 1.200 starfsumsóknir borist til Advania og er enn unnið úr þeim umsóknum. 

Góð verkefnastaða

„Verkefnastaða okkar er góð og það er fjöldi tækifæra fyrir gott fólk. Það má búast við að um 5 – 10 starfsmenn verði ráðnir til okkar á allra næstu dögum og vikum og fljótlega munum við jafnframt huga að ráðningu sumarstarfsmanna,“ segir Gestur G. Gestsson forstjóri Advania. 

Skemmtilegt félagslíf og gott starfsumhverfi

Mikil áhersla er lögð á gott starfsumhverfi hjá Advania og skemmtilegt félagslíf. Mötuneytið er frábært og góð líkamsræktaraðstaða er í höfuðstöðvunum í Guðrúnartúni. Starfsmenn eru hvattir til að nýta sem vistvæna ferðamáta og fá samgöngustyrki kjósi þeir þá leið. 

Fleiri fréttir

Fréttir
24.04.2026
Ársreikningur Advania á Íslandi hefur verið samþykktur fyrir árið 2025.
Fréttir
24.04.2026
Árs- og sjálfbærniskýrsla Advania Group kom út í dag en í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af rekstri samstæðunnar, stefnu hennar og sjálfbærnimarkmiðum.
Blogg
24.04.2026
Því hefur verið spáð í nokkur ár að það sé einungis tímaspursmál hvenær nútíma gervigreindarmódel nái því þroskastigi að geta framkvæmt heildstæðar netárásir og nýtt sér alla árásárkeðjuna svokölluðu sem netglæpamenn hafa haft að leiðarljósi í áratugi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.