Nýjasta nýtt - 10.10.2018 11:31:00

50 ára óeigingjarnt starf MS-félagsins

Advania óskar MS félaginu til hamingju með 50 ára starf. Félagið hefur alla tíð unnið ötullega að velferð þeirra sem glíma við MS-sjúkdóminn.

Advania óskar MS félaginu til hamingju með 50 ára starf. Félagið hefur alla tíð unnið ötullega að velferð þeirra sem glíma við MS-sjúkdóminn.

Markmið félagsins er að veita stuðning og stuðla að öflugri félags- og fræðslustarfsemi. Félagið hefur verið málsvari félagsmanna gagnvart hinu opinbera.
Helsti hvatamaður að stofnun MS-félags Íslands var Kjartan R. Guðmundsson yfirlæknir á taugasjúkdómadeild Landspítalans en hann var lengi vel sá maður á landinu sem bjó yfir mestri þekkingu á sjúkdómnum.
Frá því félagið var stofnað 20.september 1968 hefur það áorkað mörgu sem gjörbreytt hefur aðstæðum þeirra sem greinast með MS. Helst ber að nefna byggingu MS-hússins við Sléttuveg þar sem starfsemi félagsins er að finna; skrifstofu, dagvist og endurhæfingu. Félagið hefur notið velvildar og fjárhagslegra styrkja frá góðgerðarfélögum, almenningi og opinberum aðilum en einu föstu tekjur félagsins eru félagsgjöld.
Advania óskar félaginu til hamingju með hálfrar aldar óeigingjarnt starf og færir því að gjöf DELL skjá fyrir fundarherbergi MS-Félagsins. Ægir Már Þórisson forstjóri Advania afhenti Ingdísi Líndal framkvæmdastjóra og Björg Ástu Þórðardóttur formanni MS-Félagsins, skjáinn á dögunum.


Fleiri fréttir

Blogg
02.06.2026
Noona hefur lokið innleiðingu á Salesforce í samstarfi við Advania og markar það mikilvægan áfanga í áframhaldandi þróun á þjónustu og samskiptum við viðskiptavini.
Blogg
29.05.2026
Nýverið fengum við í Advania heimsókn frá Stelpur, stálp og tækni sem er verkefni á vegum Háskólans í Reykjavík. Heimsóknin var hvetjandi og vakti mikilvæga spurningu: Hvernig tryggjum við að fleiri sjái sér framtíð í tæknigeiranum?
Fréttir
27.05.2026
Advania hefur nú lokið kaupum á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv.  Samruninn er mikilvægur þáttur í áframhaldandi framsækni Advania á Íslandi og stórt skref í þeirri stefnu að verða öflugur samstarfsaðili á sviði sjálfvirknivæðingar og gervigreindar á evrópskum markaði.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.