Nýjasta nýtt - 10.06.2014
FBI, Skype, Google og Cisco á 20. Haustráðstefnu Advania
Advania heldur hina árlegu Haustráðstefnu í tuttugasta sinn í Hörpu þann 12. september n.k. Á henni verða tuttugu og sjö fyrirlestrar á þremur fyrirlestralínum: Öryggi og tækni, Stjórnun og Nýsköpun. Að auki tala fjórir lykilfyrirlesarar á ráðstefnunni.
Helstu atriði
- Advania heldur tuttugustu Haustráðstefnuna í röð þann 12. september næst komandi í Hörpu
- Tuttugu og sjö fyrirlestrar á þremur fyrirlestralínum
- Fjórir lykilfyrirlesarar frá Google, Plain Vanilla Games og Cisco, Magnús Scheving frumkvöðull setur ráðstefnuna.
- Skráning gesta er hafin á vef Advania og hægt að kaupa miða á tilboðsverði til og með 31. ágúst
Öryggi og tækni, Stjórnun og Nýsköpun
Advania heldur hina árlegu Haustráðstefnu í tuttugasta sinn í Hörpu þann 12. september næstkomandi. Dagskrá ráðstefnunnar liggur nú fyrir og á henni verða tuttugu og sjö fyrirlestrar á þremur fyrirlestralínum:
- Öryggi og tækni
- Stjórnun
- Nýsköpun.
FBI, Microsoft, Google, Cisco, EMC, Citrix og Samsung
Sextán erlendir sérfræðingar frá aðilum eins og FBI, Microsoft, Google, Cisco, EMC, Citrix og Samsung fara yfir strauma og stefnur í tækni og upplýsingaöryggi. Þaulreynt fagfólk úr atvinnulífinu hér heima og erlendis greinir frá því hvernig það hefur nýtt upplýsingatæknina til að leysa úr krefjandi verkefnum eða í nýsköpun.
Plain Vanilla Games, Cisco og Google Enterprise
Að þessu sinni tala fjórir lykilfyrirlesarar. Þeir eru Þorsteinn B. Friðriksson forstjóri og stofnandi Plain Vanilla Games, Carlos Dominguez aðstoðarforstjóri hjá Cisco, Magnús Scheving frumkvöðull og Jesper Stormholt sem stýrir Google Enterprise á Norðurlöndunum.
Expó svæði
Nokkur leiðandi fyrirtæki í upplýsingatækni munu einnig sýna nýjustu lausnir og græjur á sérstöku Expó svæði.
Haustráðstefna Advania er stærsti viðburður ársins í upplýsingatækni
„Markmiðið með Haustráðstefnuninni er að miðla því sem efst ber í upplýsingatækni á hverjum tíma og benda á leiðir til þess að ná ávinningi og samkeppnisforskoti. Í fyrra héldum við okkar fjölsóttustu Haustráðstefnu til þessa en þá fengum við um níu hundruð gesti á ráðstefnuna enda var uppselt á hana og rúmlega það. Haustráðstefnan er því fyrir löngu búin að festa sig í sessi sem stærsti viðburðurinn ársins í upplýsingatækni. Hún er einstakt tækifæri fyrir stjórnendur og sérfræðinga að fá beint í æð það sem er að gerast í hinum síbreytilega heimi upplýsingatækninnar,“ segir Gestur G. Gestsson forstjóri Advania.