Nýjasta nýtt - 16. maí 2018

HM á risaskjá í Hljómskálagarðinum

Útsendingar frá heimsmeistaramótinu í fótbolta verða í Hljómskálagarðinum og á Ingólfstorgi í sumar. Leikir Íslands verða sýndir í Hljómskálagarðinum en allir leikir mótsins á Ingólfstorgi.

Útsendingar frá heimsmeistaramótinu í fótbolta verða í Hljómskálagarðinum og á Ingólfstorgi í sumar. Leikir Íslands verða sýndir í Hljómskálagarðinum en allir leikir mótsins á Ingólfstorgi.

Hljómskálagarðurinn og Ingólfstorg verða því hin opinberu HM-torg Reykjavíkur í sumar. Fulltrúar Reykjavíkurborgar, Knattspyrnusambands Íslands og bakhjarlar KSÍ kynntu áformin í Hljómskálanum í dag. RÚV mun koma sér upp aðstöðu á Ingólfstorgi og í Hljómskálagarðinum og vera með útsendingar frá HM þaðan.

Einstök stemning myndaðist á Arnarhóli fyrir tveimur árum þegar strákarnir kepptu á Evrópumótinu í knattspyrnu en til þess að geta tekið á móti þessum fjölda fólks var talið heppilegra að vera í Hljómskálagarðinum með tilliti til stærðar og umhverfis, aðkomu og aðgengismála. Í garðinum verður meðal annars gert ráð fyrir leiktækjum fyrir börn og veitingaaðstöðu á meðan útsendingum stendur.

Bakhjarlar Knattspyrnusambandsins eru N1, Advania, Landsbankinn, Coca Cola, Vodafone og Icelandair.

Leikir Íslands verða gegn Argentínu í Moskvu 16. júní, gegn Nígeríu í Volgograd 22. júní og Króatíu í Rostov 26. júní.

Fari svo að Ísland komist upp úr riðlinum verða þeir leikir jafnframt sýndir í Hljómskálagarðinum.

„Reykjavíkurborg býður alla velkomna að fylgjast með leikjunum og upplifa einstaka stemningu í fallegu umhverfi og góðri aðstöðu. HM er risaviðburður og við erum stolt af því að geta boðið öllum landsmönnum jafnt sem erlendum gestum upp á þennan möguleika,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

„Knattspyrnuhátíðin í miðborginni heldur áfram þetta sumarið og nú tekur HM-torgið við af EM-torgum síðustu ára. Það er auðvitað mikið gleðiefni að við séum í þeirri stöðu á hverju ári að bjóða til annarrar eins knattspyrnuveislu. Samstarf KSÍ, Reykjavíkurborgar og bakhjarla KSÍ hefur verið öflugt og reynsla síðustu ára mun gera okkur kleift að gera enn betur í sumar, segir Guðni Bergsson, formaður KSÍ.

Fleiri fréttir

Blogg
04.06.2026
Fyrir stuttu heyrði ég manneskju sem ég þekki segja; „Til hvers að vera að eyða tímanum í að læra tölvunarfræði ef gervigreind er hvort sem er að fara að leysa þetta í framtíðinni?“
Blogg
02.06.2026
Noona hefur lokið innleiðingu á Salesforce í samstarfi við Advania og markar það mikilvægan áfanga í áframhaldandi þróun á þjónustu og samskiptum við viðskiptavini.
Blogg
29.05.2026
Nýverið fengum við í Advania heimsókn frá Stelpur, stálp og tækni sem er verkefni á vegum Háskólans í Reykjavík. Heimsóknin var hvetjandi og vakti mikilvæga spurningu: Hvernig tryggjum við að fleiri sjái sér framtíð í tæknigeiranum?
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.