Nýjasta nýtt - 11.10.2018 09:37:00

Högni Hallgrímsson forstöðumaður hjá Advania

Högni Hallgrímsson hefur verið ráðinn forstöðumaður verslana- og afgreiðslulausna Advania.

Högni Hallgrímsson hefur verið ráðinn forstöðumaður verslana- og afgreiðslulausna Advania.

Hann fer fyrir teymi sem veitir stórum og smáum verslunum alhliða þjónustu, svo sem við upplýsingakerfi, vélbúnað og vefverslanir.
Meðal afgreiðslulausna Advania eru sjálfsafgreiðslukerfi sem tekin hafa verið í notkun í stærstu matvöruverslanakeðjum landsins á undanförnum mánuðum. Neytendur hafa sýnt góða svörun við lausnunum og velja í auknum mæli að afgreiða sig sjálfir í verslunum. Sjálfsafgreiðslulausnir hafa því fest sig í sessi sem valkostur í fjölmörgum verslunum landsins og hafa umsvif Advania aukist verulega á þessu sviði.

Högni er með Cand. Science gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur 18 ára reynslu af stjórnun og innleiðingu upplýsingakerfa. Hann starfaði áður hjá Össurri en lengst af hjá LS Retail þar sem hann vann í 15 ár, meðal annars sem framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs.

Fleiri fréttir

Blogg
02.06.2026
Noona hefur lokið innleiðingu á Salesforce í samstarfi við Advania og markar það mikilvægan áfanga í áframhaldandi þróun á þjónustu og samskiptum við viðskiptavini.
Blogg
29.05.2026
Nýverið fengum við í Advania heimsókn frá Stelpur, stálp og tækni sem er verkefni á vegum Háskólans í Reykjavík. Heimsóknin var hvetjandi og vakti mikilvæga spurningu: Hvernig tryggjum við að fleiri sjái sér framtíð í tæknigeiranum?
Fréttir
27.05.2026
Advania hefur nú lokið kaupum á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv.  Samruninn er mikilvægur þáttur í áframhaldandi framsækni Advania á Íslandi og stórt skref í þeirri stefnu að verða öflugur samstarfsaðili á sviði sjálfvirknivæðingar og gervigreindar á evrópskum markaði.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.