Nýjasta nýtt - DD.05.YYYY

Konur í tækni kíkja á tölvuskýin hjá Advania

Þann 14. maí næstkomandi bjóðum við hjá Advania félagsmenn Konur í tækni velkomna í gagnaver Advania í Hafnarfirði en þetta skemmtilega félag hefur það að markmiði að hvetja konur til að taka virkan þátt í tæknigeiranum.

Þann 14. maí næstkomandi bjóðum við hjá Advania félagsmenn Konur í tækni velkomna í gagnaver Advania í Hafnarfirði en þetta skemmtilega félag hefur það að markmiði að hvetja konur til að taka virkan þátt í tæknigeiranum.

Umræðan um uppbyggingu gagnavera á Íslandi hefur ekki farið framhjá neinum. Aukinn áhugi á „Skýinu“ drífur áfram aukningu í þessum geira auk ýmissar þjónustu til að mynda Software as a Service (SaaS), Platform as a Service (PaaS) og Infastructure as a Service (IaaS). 

Það verða þau Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, og Ragnhildur forstöðumaður Hýsingar og reksturs, sem taka á móti gestum og fræða þá um hvernig Advania sameinar þekkingu, gagnaver sín og græna orku til að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu og vörur.

Skráning á viðburðinn er á Facebook

Fleiri fréttir

Blogg
18.06.2026
Ársskýrsla Advania kom út á dögunum og þar er fjallað um sjálfbærni og fjárhag á sama grundvelli, þar sem þessir þættir eru metnir til jafns hjá samstæðunni allri. Sjálfbærni er þannig orðin mun stærri og dýpri hluti af rekstri Advania en áður og sífellt meira nýtt sem virkur hluti af stefnumótun, áhættustýringu og verðmætasköpun. Megináherslur skýrslunnar verða gefnar út á næstu vikum í formi styttri blogga.
Blogg
05.06.2026
Þjónustuhugsun skiptir meira máli en nokkru sinni fyrr.
Blogg
04.06.2026
Fyrir stuttu heyrði ég manneskju sem ég þekki segja; „Til hvers að vera að eyða tímanum í að læra tölvunarfræði ef gervigreind er hvort sem er að fara að leysa þetta í framtíðinni?“
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.