Nýjasta nýtt - 06.05.2014

Konur í tækni kíkja á tölvuskýin hjá Advania

Konur í tækni koma í heimsókn í gagnaver Advania í Hafnarfirði

Konur eru hvattar til þess að taka virkan þátt í tæknigeiranum

Miðvikudaginn 14. maí næstkomandi kl. 17:00 fáum við Konur í tækni  í heimsókn til okkar í gagnaver Advania í Hafnarfirði. Þetta skemmtilega félag hefur það að markmiði að hvetja konur til að taka virkan þátt í tæknigeiranum og hefur starfsemi þess verið mjög virk undanfarið. Það er því sönn ánægja að taka á móti félagskonum og öðrum gestum, enda hefur umræðan um uppbyggingu gagnavera á Íslandi ekki farið framhjá neinum.


Aukinn áhugi á „Skýinu“ drífur áfram vöxt í þessum geira auk ýmissar þjónustu til að mynda Software as a Service (SaaS), Platform as a Service (PaaS) og Infastructure as a Service (IaaS). 

Græn orka og góð þjónusta

Það verða þau Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania og Ragnhildur Ágústsdóttir forstöðumaður hýsingar og reksturs hjá Advania, sem taka á móti gestum og fræða þá um hvernig Advania sameinar þekkingu, gagnaver sín og græna orku til að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu og vörur.

Fjölmiðlar eru velkomnir

Við bjóðum fjölmiðla velkomna á staðinn. Nánari upplýsingar veitir Elísabet Sveinsdóttir, forstöðumaður samskiptasviðs Advania sími: 840 7145.

 

Fleiri fréttir

Fréttir
24.04.2026
Ársreikningur Advania á Íslandi hefur verið samþykktur fyrir árið 2025.
Fréttir
24.04.2026
Árs- og sjálfbærniskýrsla Advania Group kom út í dag en í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af rekstri samstæðunnar, stefnu hennar og sjálfbærnimarkmiðum.
Blogg
24.04.2026
Því hefur verið spáð í nokkur ár að það sé einungis tímaspursmál hvenær nútíma gervigreindarmódel nái því þroskastigi að geta framkvæmt heildstæðar netárásir og nýtt sér alla árásárkeðjuna svokölluðu sem netglæpamenn hafa haft að leiðarljósi í áratugi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.