Nýjasta nýtt - 12. mars 2018

Kristján nýr forstöðumaður hjá Advania

Kristján H. Hákonarsson hefur tekið við sem forstöðumaður öryggis- og persónuverndarmála hjá Advania.

Kristján H. Hákonarsson hefur tekið við sem forstöðumaður öryggis- og persónuverndarmála hjá Advania.
Kristján gegnir nú nýrri stöðu persónuverndarfulltrúa Advania og mun tryggja að evrópsk reglugerð um persónuvernd verði innleidd hjá fyrirtækinu. Hann fer auk þess fyrir raunlægu öryggi og upplýsingaöryggi fyrirtækisins.
Advania er eitt stærsta upplýsingatæknifyrirtæki landsins og er vinnsluaðili gagna fyrir fjölmörg fyrirtæki. Persónuverndar- og öryggismál eru því algjörum forgangi hjá fyrirtækinu sem nýtur góðs af umfangsmikilli reynslu Kristjáns.
Kristján er menntaður kerfisfræðingur frá háskólanum í Skövde. Hann hefur unnið við gæða- og öryggisstjórnun í heilbrigðistækni, upplýsingatækni og fjármálageira, og starfað sem ráðgjafi á þessu sviði frá árinu 2000. Hann hefur verið öryggisstjóri Advania frá árinu 2013.
Kristján er kvæntur Sjöfn Kjartansdóttir, vörustjóra hjá Kvikna Medical.

Fleiri fréttir

Blogg
04.06.2026
Fyrir stuttu heyrði ég manneskju sem ég þekki segja; „Til hvers að vera að eyða tímanum í að læra tölvunarfræði ef gervigreind er hvort sem er að fara að leysa þetta í framtíðinni?“
Blogg
02.06.2026
Noona hefur lokið innleiðingu á Salesforce í samstarfi við Advania og markar það mikilvægan áfanga í áframhaldandi þróun á þjónustu og samskiptum við viðskiptavini.
Blogg
29.05.2026
Nýverið fengum við í Advania heimsókn frá Stelpur, stálp og tækni sem er verkefni á vegum Háskólans í Reykjavík. Heimsóknin var hvetjandi og vakti mikilvæga spurningu: Hvernig tryggjum við að fleiri sjái sér framtíð í tæknigeiranum?
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.